samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir andsvarið. Það var gott að einskorða það á svona stuttum tíma við flugvöll og flugöryggi, þannig að ég þakka þér fyrir þessa spurningu. Þetta eru einmitt lykilinnviðir. Sem sveitarstjórnarmaður, oddviti og formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi er maður að reyna að halda svo mörgum boltum á lofti og einn af þeim er að setja sig vel inn í alþjóðlegt flugöryggi, varaflugvallarmálin. Þar vil ég eyða tíma mínum í að benda á að Egilsstaðaflugvöllur er í forgangi, eða átti að vera í forgangi við uppbyggingu varaflugvalla hér á landi af því að það er svo gríðarlega gott aðflug að honum. Það var þota sem var þriðja þotan sem kom til lendingar sem var það hættulega eldsneytislaus að farið var í vinnu við flugstefnu Íslands. Hún var samþykkt hér á Alþingi 2020. Uppbygging á flugvellinum hefur engan veginn verið í takt við það eða forgang þessarar stefnu. En að tengja þetta öryggis- og varnarmálum er akkúrat málið og ég hef reynt að gera það líka upp á þá uppbyggingu.