157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:16]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek undir hversu mikilvægt varðandi þær stefnur sem er verið að leggja mikla vinnu í, tugir ef ekki hundruð, jafnvel þúsundir klukkustunda fara í vinnu ef maður dregur saman vinnuframlag ólíks fólks, hversu óþolandi staða það er að það skili sér ekki í fjármögnuðum aðgerðum heldur einhvern veginn sé oft gat á milli stefnu og raunverulegra aðgerða, að það skorti fjármagn bara svona heilt yfir.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann, af því að það hefur dálítið verið nefnt í samhengi við innviðafélagið margumtalaða, sá ótti að um verði að ræða einhvers konar nýtt, sjálfstætt félag líkt og Isavia, félag sem sé ekki nægilega tengt við pólitíska ábyrgð, þá sé ekki hægt að hafa nægilega skýrt boðvald yfir þeim verkefnum sem á að fara í. Ég veit að hv. þingmaður þekkir eflaust (Forseti hringir.) allt of vel hversu erfitt það getur verið þegar ráðherra hefur ekki beint boðvald yfir stofnunum eins og Isavia til að hrinda málum í framkvæmd. (Forseti hringir.) Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann deili þeim áhyggjum að mögulega sé verið að skapa, þótt við séum jákvæð fyrir innviðafélagi, ríki í ríkinu.