samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða yfirferð í sinni ræðu og býð hana velkomna til þingsins á meðan hún er hér. Hv. þingmaður er nú stórtækur í sveitarstjórnarmálum í Múlaþingi og mér leikur forvitni á að vita einmitt í framhaldi af þessari umræðu hver draumastaðan væri í huga hv. þingmanns út frá þessari samgönguáætlun. Auðvitað voru Fjarðarheiðargöng lengi þarna í forgangi, árum saman, án þess að það kæmi til eiginlegra framkvæmda. En síðan er því breytt; það er kannski sjálfstæð umræða sem við getum kannski komist í hérna á eftir, um það hvers konar áætlanir eru áætlanir sem eru síðan ekki áætlanir sem byggt er á. En það er svo sem önnur umræða. Það er bara spurning sem er mér hugleikin af því að auðvitað eru margir gangakostir á svæðinu og mjög skammt í líflegar deilur þegar fólk fer að deila um það hvort er betra. Hvernig horfir þetta við t.d. sveitarstjórninni sem nú er tekin við? Hver eru sjónarmiðin? Ef hv. þingmaður gæti lýst því.