samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir andsvarið. Ja, ég var jafnframt, þar til fyrir nokkrum dögum, formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og til þess að vera öflugt svæði þá hugsa ég sem eitt Austurland. Við gerum það öll á Austurlandi. Við hugsum ekki bara um okkar sveitarfélag af því að verðmætasköpun og öll tækifæri byggjast á því. Múlaþing er með gríðarlega orkuframleiðslu og svo kemur verðmætasköpunin fram í Fjarðabyggð og við erum með orkuna fyrir álverið og svona, þannig að við hugsum sem eitt. Í svæðisskipulaginu er þetta skýrt: Fjarðarheiðargöng eru nr. 1. Það sem hefur verið líka er það sem við köllum Fjarðagöng í dag, það eru göng frá Seyðisfirði í Mjóafjörð og Fannardal. Í svæðisskipulaginu lögðum við áherslu á að samhliða framkvæmdum á Fjarðarheiðargöngum ætti að fara í hönnun á Fjarðagöngum, þannig að ég er algjörlega fylgjandi því. Það væri í rauninni í takt við það sem verið er að gera. Það vantar bara borun og framkvæmdir við jarðgöngin. En annars er það heilsársvegur yfir Öxi, Fjarðarheiðargöng og Suðurfjarðavegur og að laga þessar einbreiðu brýr sem eru með þungatakmörkunum. Það er okkar áhersla.