samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Maður hefur einmitt lýst því áður að maður getur sannarlega haft mikinn skilning á djúpum vonbrigðum sem komu fram þegar lá endanlega fyrir í desember hvernig breytt forgangsröðun var. Það hefur sömuleiðis vakið upp heitar umræður í þinginu um hlutverk samgönguáætlunar og hversu mjög svæði, sem mega náttúrlega ekki við meiri óvissu en alla vega er nauðsynleg, geta reitt sig á þessa samgönguáætlun sem tæki til þess að skipuleggja fram í tímann. Og nú bætist auðvitað inn í þá umræðu, og hefur verið til umræðu árum saman, að hægt verði að beita nýju innviðafélagi til að flýta verulega eða alla vega koma þessum framkvæmdum á miklu betri rekspöl.
Hefur hv. þingmaður trú á að samgönguáætlun, samhliða þessu nýja innviðafélagi á vegum þessarar hæstv. ríkisstjórnar — að þessi mál horfi til betri vegar fyrir það svæði sem hún er fulltrúi fyrir? Er hv. þingmaður bjartsýn, getum við sagt, fyrir framhaldinu á þessum grunni sem er verið að móta hérna núna?