157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:24]
Horfa

Berglind Harpa Svavarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Með þessa samgönguáætlun sem við erum með í höndunum núna þá er ég bara ekki bjartsýn af því að það er ekkert að fara að gerast á Austurlandi. Það er bara þannig. Við erum með Austursvæði. Mestu fjármunirnir hafa verið í Suðurkjördæmi. Það er hvorki í Norðausturkjördæmi né á umdæmissvæði SSA. Þarna erum við með gríðarlega öflugt svæði og það verður bara að fjárfesta í okkur til þess að við getum viðhaldið verðmætasköpun, aukið hana og nýtt öll þau tækifæri sem liggja á svæðinu. Orkuframleiðsla er t.d. grunnur verðmætasköpunar. Við erum með 30% af orkuframleiðslu. Austurland í heild sinni er mjög fylgjandi aukinni orkuframleiðslu. Samt borgum við hátt verð fyrir orkuna með hana í bakgarðinum og allt þetta. En ég vil bara koma inn á það hérna í lokin að hvort sem það er þessi samgönguáætlun eða annað þá er stór hluti af verkum sveitarstjórnarfulltrúa í dag, og var í kosningaáherslum fyrir sveitarstjórnarkosningar, bara runa af því að standa vörð um sveitarfélög gegn ríkinu í dag. Þetta er eitt af því.