samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Það er hægt að nálgast samgönguáætlun út frá mörgum hliðum. Vegir hennar liggja til allra átta, má segja. Ég hef farið yfir þessa aðferðafræði í fyrri ræðum mínum um þetta mikilvæga mál. Ég hef talið að við þyrftum að ná miklu meiri samstöðu í þinginu um að horfa á þetta gríðarverkefni sem bíður okkar, verkefni sem endurspeglast í ræðum þingmanna sem gjarnan horfa hver með sínum augum út í kjördæmi sín. Þetta er metingur um það hvar mikilvægustu verkefnin eru. En það er alveg sama hvar við berum niður.
Ég ætla að bera niður í þessari ræðu um ástandið á höfuðborgarsvæðinu. Hér hefur þróun umferðarmála verið með þeim hætti á undanförnum árum að sáralítið hefur verið gert í samgöngubótum. Menn hafa reynt alls konar leiðir í því að efla almenningssamgöngur; sett í þær meira fjármagn, verið með meiri tíðni á ferðum og reynt að ná ákveðnum hvata í það að auka þátttöku fólks í almenningssamgöngum. Það hefur meira og minna allt mistekist.
Það var meira að segja gerður samningur fyrir nokkuð mörgum árum milli vinstri stjórnarinnar — ríkisstjórnarinnar þáverandi — og sveitarfélaga um að stöðva uppbyggingu meiri vegaframkvæmda en fara í það að efla almenningssamgöngur. Það hefur ekki gengið eftir. Áfram hefur umferðin þyngst og þannig mun þróunin verða áfram. Á sama tíma hefur verið haldið aftur af öllum stórstígum skrefum. Það má segja að fyrst og fremst hafi þessi vinstri meiri hluti, sem ráðið hefur Reykjavíkurborg á undanförnum árum og áratugum, staðið í vegi fyrir því að hægt væri að fara í sómasamlegar lausnir sem blasa við öllum.
Mislæg gatnamót hefðu átt að vera löngu komin á ákveðnum leiðum í Reykjavík. Það er hægt að nefna Bústaðaveg og nokkra staði á Miklubraut. Allt eru þetta einföld skref í þessu og hefðu leyst gríðarlega mikinn vanda. Við værum ekki að glíma við þessar tafir sem eru í umferðinni nú ef þau skref hefðu verið heimiluð. Hann hefur orðið mjög dýrkeyptur þvermóðskuháttur Reykjavíkurborgar í málinu.
Menn geta borið þetta saman við það að keyra Reykjanesbraut úr Mjódd og suður í Hafnarfjörð gegnum Kópavog og Garðabæ og hvers lags umferðartafir væru á þeirri leið ef þar væru alls staðar ljósastýrð gatnamót. Það er ekki fyrr en við komum í Kaplakrika og á það svæði í Hafnarfirði, þar sem framkvæmdir hafa dregist allt of lengi, að aftur verða tafir. Að öðru leyti gengur umferð mjög vel frá Bústaðavegi þegar við komumst gegnum ljósin þar og áfram.
Slysatíðni er mest á landinu á ljósastýrðum gatnamótum í Reykjavík. Hún er mest á fjölförnustu gatnamótum eins og Kringlumýrarbraut–Miklubraut, Háaleitisbraut–Miklubraut, Grensásvegi–Miklubraut og Háaleitisbraut–Kringlumýrarbraut. Þetta eru slysamestu gatnamót landsins. Fjölförnustu gatnamót landsins eru í Ártúnsbrekku, þegar þú kemur niður Ártúnsbrekku og ferð yfir Reykjanesbraut. Þar verða fæst slys á gatnamótum á landinu og það eru mislæg gatnamót. Þannig að það er bæði tjón á tækjum, búnaði og fólki, sem er auðvitað ómetanlegt.
Ég fagna því að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem nú eru meira og minna öll undir stjórn sjálfstæðismanna, ætla sér að setjast niður og endurskoða þetta, forgangsraða upp á nýtt í verkefnum og horfa til þess. Á borðið hafa verið lagðar skynsamlegar nálganir og ódýrari og einfaldari leiðir sem geta komið miklu fyrr inn sem lausnir í þeim stóru framkvæmdum sem eru fyrir framan okkur.
Það er góður hópur menntaðra manna á þessu sviði sem hefur rannsakað þetta mjög vel, borið höfuðborgarsvæðið saman við sambærilegar borgir úti í heimi, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu, og lagt sínar lausnir á borðið. Þetta byggist á aukaakreinum, nútímaljósastýringu og mörgum öðrum einfaldari lausnum og geta verið skref upp í það sem við köllum borgarlínu í dag. Við sjáum hvernig málin þróast. En þetta verður ódýrara af því að fjármögnunin sem er fyrir framan okkur í þessu verkefni er stórkostleg. Hún er eiginlega óyfirstíganleg í þeim áætlunum sem liggja nú til grundvallar.
Virðulegi forseti. Tíminn líður hratt þegar maður er kominn í sína fimmtu ræðu um þetta mikilvæga mál og dugar skammt. Ég óska eftir því að verða settur aftur á mælendaskrá.