157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:31]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætlaði að ræða aðeins meirihlutaálit umhverfis- og samgöngunefndar og er þar staddur á bls. 17 þar sem meiri hlutinn er með einhvers konar bráðaaðgerðir, sem mér finnast á þessu stigi málsins afskaplega einkennilegar og furðulegar, þar sem hv. meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar er að segja raunverulega, með leyfi frú forseta: „Á þessum tímapunkti liggur ekki fyrir hvaða verkefni á samgönguáætlun færast til framkvæmda hjá innviðafélagi. Þó má vera ljóst að það getur gerst hratt þegar frumvarp til laga um félagið og samgönguáætlun hefur verið samþykkt á Alþingi.“

Og svo nokkru síðar, með leyfi frú forseta:

„[M]á vera ljóst að aukið svigrúm til að fjölga verkefnum á samgönguáætlun getur styrkt áherslur hennar og flýtt því að markmið náist. Meiri hlutinn ræddi hver væru fyrstu forgangsverkefni til breytinga á samgönguáætlun ef slíkt svigrúm skapaðist, og stillti upp tillögu fyrir 6,3 milljarða kr. sem tekur mið af vegabótum á Kjalarnesi …“

Frú forseti. Þetta eru alveg stóreinkennilegar hugleiðingar þar sem meiri hlutinn er með einhvers konar dagdrauma um samgönguáætlun, sem er ósamþykkt, og frumvarp um innviðafélag, sem er líka ósamþykkt hér á Alþingi, en er að gera ráð fyrir og listar upp hér á bls. 18 í sínu áliti fullt af framkvæmdum sem hægt sé að taka framar á lista ef þetta verður. Í fyrsta lagi ef þetta verður samþykkt, þessi frumvörp og þessi ályktun, og ef innviðafélagið tekur þetta verkefni, Kjalarnesverkefni, þá sé hægt að fara í einhverjar framkvæmdir sem meiri hlutinn telur upp í einhverjum dagdraumum sínum, sem er hreinlega, frú forseti, ef ég má segja, barnalegt. Barnalegar hugleiðingar þar sem öll þessi „ef af verði“ — það er algjörlega óljóst hvort þetta gerist svona. En þarna er verið að selja einhverjar hugmyndir um einhver verkefni sem gætu hugsanlega komið til framkvæmda fyrr en ella, og síðan listuð upp þessi verkefni svona til að skreyta sitt álit, sem er algerlega — ég held þetta sé bara einsdæmi að meiri hluti í nefnd sé með svona dagdrauma í sínu áliti. Geta menn bara ekki verið eðlilegir og talað fyrir sínu máli? Af hverju geta menn bara ekki verið eðlilegir og sagt: Heyrðu, hérna er samgönguáætlun, við ætlum að hafa þetta svona? Nei, nei. Ef frumvarp um innviðafélag verður samþykkt og ef þessi framkvæmd verður stjörnumerkt og ef innviðafélagið tekur svo við henni, sem er alls óvíst, þá ætlum við að fara í einhver önnur verkefni og skreyta fyrir kjósendum að flýta einhverjum verkefnum, og lista þau svo upp. Þetta er einsdæmi, frú forseti. Mín skoðun er sú að svona eigi menn ekki að vinna. Barnalegt, frú forseti.

Þarna er t.d. talað um sjóvarnir. Ég vil nýta minn tíma hér í ræðu til að mæla fyrir því að það sé mjög nauðsynlegt að fara í og færa sjóvarnir, leggja meiri pening í sjóvarnir eða fjármagn í sjóvarnir, við Vík í Mýrdal. Þar er láglendi lítið og mikið brot á ströndinni. Síðastliðinn vetur urðu þrálátar austanáttir til þess að fjaran í Reynisfjöru sópaðist burtu að miklum hluta og einnig braut mjög á ströndinni í Vík í Mýrdal svo að byggingar og fjárhús og hesthús og fleira og vegurinn, þjóðvegur 1, sem er þarna skammt fyrir ofan, eru í stórhættu. Við getum ekki horft upp á þetta gerast, frú forseti. Það verður að leggja fjármagn í að búa þarna til almennilega sjóvarnargarða sem fyrst, frú forseti. — Ég kem kannski að þessu í minni næstu ræðu.