157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:36]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Þar sem það er dágóð stund síðan ég hef komið hingað upp og rætt samgönguáætlunina þá langar mig að fara aðeins yfir, áður en ég byrja fyrir alvöru á því sem ég ætlaði að segja í þessari ræðu, og rifja aðeins upp hvað ég hef fjallað um hérna áður. Í minni fyrstu ræðu fjallaði ég um framlagða samgönguáætlun í heild sinni og tenginguna við innviðafélagið. Þetta tvennt er mjög nátengt. Ég fjallaði sérstaklega í mínu fyrsta innleggi um Árneshrepp og ferjuáætlunina og Baldur. Jarðgöngin fór ég líka talsvert inn í. Síðan í næstu ræðu fór ég aðeins meira inn í mitt nærsvæði, sem er Norðvesturkjördæmi. Síðan í þriðju og fjórðu ræðu tók ég talsverðan tíma í að fjalla um stöðu ferjumála út af Breiðafjarðarferjunni Baldri og hvernig verið er að nýta hana. En síðan í minni síðustu ræðu, fimmtu ræðu, var ég komin inn í Vesturland. Norðvesturkjördæmi skiptist í þrjú svæði: Vesturland, Vestfirði og Norðvesturland, þannig að ég ætlaði að taka fyrir hvert og eitt svæði og var byrjuð á Vesturlandi.

Í þessari ræðu hins vegar ætla ég að venda mínu kvæði í kross og fjalla svolítið um farnetsþjónustumálin. Ég hef haft af þeim áhyggjur vegna þess að það hefur komið á daginn að við útfösun á 2G og 3G yfir í 4G og 5G eru holur í kerfinu. Þetta er sérlega slæmt úti á landi, úti á landsbyggðunum. Menn mega ekki horfa á þetta bara þannig að fólk vilji geta komist á netið og talað í símann og eitthvað svona. Þetta er bara risastórt öryggismál. Ég meina það, við viljum ekki hafa það þannig að fólk sem býr úti á landi nái ekki að hringja í 112. En staðan er þannig t.d. á Vestfjörðum að maður fer þar um og er að keyra aðalvegina og þar eru risasvæði þar sem það er ekkert samband. Ég gerði það að leik mínum þegar ég var að keyra þarna um daginn að ég var mikið í símanum og símtölin voru alltaf að slitna. Ég var bara að prófa hvar væri samband og það var ofboðslega stopult. Við þetta er bara ekki búandi þannig að ég hef spurt innviðaherra ítrekað út í þessi mál og mér líkar ekki svörin sem ég er að fá. Ég hef fengið þau svör frá ráðherranum að þessi útfösun á 2G og 3G yfir í 4G eða 5G sé viðskiptaleg ákvörðun. Mér finnst það í rauninni ólíðandi að það sé bara hægt að hafa hlutina þannig að það sé einhver viðskiptaleg ákvörðun sem stýrir því að fólk hér úti á landi búi við óöryggi. Mér finnst það ekki í lagi. Og síðan eru þau svör, sem hæstv. innviðaráðherra hefur líka gefið mér varðandi það hvort hann ætli nú að reyna að bæta úr þessu, svona sirka þau að það verði gert á kjörtímabilinu. Á kjörtímabilinu. Er kjörtímabilið að klárast á morgun eða hinn? Ef þetta kjörtímabil verður fram á árið 2028 þá eru þetta náttúrlega bara fullkomlega óboðleg svör fyrir þá einstaklinga og það landsbyggðarfólk, við getum líka talað um ferðamenn sem ferðast um landsbyggðirnar, að ná ekki sambandi, að geta ekki hringt á sjúkrabíl ef eitthvað gerist. Það er þannig hér og þar að það næst ekki samband.

Virðulegur forseti. Ég óska eftir því að verða sett aftur á mælendaskrá.