157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:02]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir ræðuna. Hún einblíndi eðlilega á sitt nærsvæði, höfuðborgarsvæðið. Hún fór raunar vítt og breitt yfir stöðu mála og það var virkilega gaman að heyra svona raunheimasögu af því hvernig er að taka strætó. Hún ræddi svolítið um Spöngina og það væri fínt ef hún myndi upplýsa mig, landsbyggðarþingmanninn, um hvar Spöngin er. [Hlátur í þingsal.] Það er hins vegar ekki ein af þeim spurningum sem ég ætlaði að beina til ráðherrans en hún má mjög gjarnan svara henni ef hún vill hérna á eftir.

En af því að þingmaðurinn fór aðeins í verkefnalista nýja meiri hlutans í Reykjavík, sem Sjálfstæðisflokkurinn á aðild að, og hluti af honum tengist náttúrlega samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og þá sérstaklega vil ég nefna það sem snýr að borgarlínu, langar mig að spyrja þingmanninn hvort henni finnist ekki nauðsynlegt að sýna ráðdeild þegar vitað er að hagkvæmari leiðir eru í boði til að ná sömu markmiðum. Þá er ég að tala um borgarlínu og síðan hágæðaalmenningssamgöngur, ekki í þessum borgarlínufasa sem mér finnst margir vera fastir í. Það hefur nefnilega verið bent á að það sé hægt að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu með mun hagkvæmari hætti en þessi borgarlínuútfærsla segir til um fyrir einn þriðja af þeim kostnaði sem áætlanir gera alla vega núna ráð fyrir að verði, verði borgarlínuleiðin farin.

Mig langar að spyrja þingmanninn hvort hún telji ekki rétt að fara hagkvæmar leiðir þar sem það er í boði og skoða t.d. þessa leið sem sýnir fram á að það sé hægt að gera sömu hluti fyrir einn þriðja af kostnaðinum.