samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég heyri það að ég þarf að fara með hana í vettvangsferð um Grafarvog og heimsækja Spöngina. Ég nefndi Spöngina í framhjáhlaupi af því að ég var að gagnrýna uppbyggingu eða í rauninni niðurrif hverfiskjarna í Grafarvoginum og fleiri hverfum borgarinnar, af því að við sáum hvernig meiri hlutinn í Reykjavíkurborg einblíndi á að byggja upp huggulega hverfiskjarna og nærþjónustu í vesturhluta borgarinnar en gerði ekki það sama fyrir austurhluta borgarinnar. En fyrsti staðurinn sem ég færi með þig á í Grafarvogi væri auðvitað Gullnesti en ekki Spöngin. Gullnesti er ekki í Spönginni.
En hvort mér hugnist að við skoðum hagkvæmari leið varðandi borgarlínu. Alveg klárlega, og ég kom inn á það að eitt af því sem er á verkefnalista nýs meiri hluta í Reykjavíkurborg er einmitt endurskoðun þessa borgarlínuverkefnis. Það sem við gætum gert strax væri auðvitað bara að bæta leiðarkerfi Strætó, sem er nú þegar til staðar, og auka tíðni. Við höfum séð að þessar borgarlínuhugmyndir byggja auðvitað á fráleitum áætlunum um notkun og ég kom líka aðeins inn á það í ræðu minni að það er verið að byrja á öfugum enda. Ég treysti nýjum meiri hluta í Reykjavíkurborg til að hafa það í huga að við gætum sett upp lúxuslestarkerfi í Reykjavík með lest sem væri hægt að sofa í, við gætum verið með svona fyrsta farrýmis lest um Reykjavíkurborg en það myndi ekki skipta neinu máli ef þú þarft yfir miðjan dag að hlaupa um borgina þvera og endilanga til að sækja þjónustu sem er komin á víð og dreif um borgina, m.a. dagvistunarúrræði. Þarna er verið að byrja á öfugum enda og við eigum klárlega að skoða hagkvæmari leiðir varðandi borgarlínu. Svo er skemmtilegt mál hér til umræðu í þinginu að frumkvæði hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur um sjálfkeyrandi bíla og við eigum auðvitað að vera svolítið framsýn í þessum efnum.