samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir svörin og hlakka til að fara með henni í kynnisferð um Grafarvoginn í strætó eða á bíl, það er spurning hvort verður. Það er líka gott að heyra að hún sé tilbúin til að skoða hagkvæmari leiðir. Það er bara virkilega gott.
Mig langar að spyrja þingmanninn: Ég er landsbyggðarþingmaður og við á landsbyggðinni búum við holótta vegi og bundið slitlag óvíða og þar eru vegasamgöngur miklu verri en hér á höfuðborgarsvæðinu þannig að stundum þegar ég er að horfa hérna á hjólastíga með hjólaleiðum í gagnkvæmar áttir verður mér hugsað til landsbyggðarinnar þar sem maður getur varla keyrt á holóttum vegum og þar fram eftir götunum. Síðan líka varðandi Fossvogsbrúna. Hún er búin að fara langt fram úr áætlunum og er ákveðinn minnisvarði. (Forseti hringir.) Finnst þingmanninum þetta rétt forgangsröðun þegar staðan er svona úti á landi, að leggja í svona hálfgerða minnisvarða þegar sums staðar er búið við hættuástand úti á landi?