samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég þekki vel þessa yfirferð hv. þingmanns því að ég hef nú bæði skrifað og talað um það hvað það er hollt fyrir okkur sem búum hér og vinnum hér að koma út á land og heyra einmitt um þessi hversdagsvandamál sem eru svo risastór hjá mörgum, sérstaklega þeim sem búa í dreifbýlli hlutum landsins. En ég myndi ekki vilja stilla þessu svona upp því að Reykjavík er auðvitað höfuðborg okkar allra, hingað sækja allir landsmenn þjónustu og hér eiga samgöngur að vera í lagi og þurfa að vera í lagi. Samgöngur hafa verið vanræktar hér og forgangsröðunin hefur verið fráleit, eins og hv. þingmaður bendir á, en það þýðir ekki að við eigum að sætta okkur við holótta vegi eða hættuástand úti á landi. Við getum hreinlega gert betur með bættri forgangsröðun.