157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:10]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og tek undir með þessum hv. þingmanni Reykjavíkur að samgöngumálin eins og þau hafa þróast á höfuðborgarsvæðinu eru á allra síðustu árum orðin að verulegu vandamáli. Maður fer út um helgar og lendir jafnvel í umferð sem var aldrei áður. Ég hef bent á, af því að maður er sanngjarn í sinni nálgun, að hér kemur ýmislegt til. Borgarbúum og ferðamönnum í Reykjavík hefur fjölgað með ósjálfbærum hætti, hef ég nú sagt. Ég bendi hér mönnum líka á í samgöngumálum að þessi úrlausnarefni, sem svo eru kölluð, í umferðarmálum á höfuðborgarsvæðinu eða annars staðar muni bara halda áfram að flækjast ef mannfjöldaþróunin verður eins ósjálfbær og hún er. En það er nú bara svona til að gæta allrar sanngirni.

Hinn þátturinn er nálgun t.d. borgaryfirvalda á höfuðborgarsvæðinu. Eins og ég sýni því skilning að vilja greiða fyrir fjölbreyttum samgöngumátum, þ.e. að hjólandi og gangandi komist leiðar sinnar og sömuleiðis að strætó sé bættur, þá er engu að síður margt sem bendir til þess, hvort sem það er einfaldlega skipting fjármuna, að 40% fjármuna fari í samgöngumáta sem 5% nota o.s.frv., að sú nálgun — og svo sömuleiðis það sem við höfum séð uppi í Árbæ eða t.d. á Suðurlandsbraut þar sem farið er inn í verkefnið af töluverðum ofsa, ef maður segir það þannig, gegn einkabílnum þegar það ætti að vera hægt að finna miklu betri leið til að halda í ákveðna sátt á milli samgöngumáta. Í stað þess að etja þeim saman og reyna alltaf að gera eitt á kostnað annars þá er það þessi nálgun sem maður hefur áhyggjur af. Ég hefði áhuga á að heyra hvernig hv. þingmaður sér framtíðarsýnina í Reykjavík ef það væri önnur leið en þessi hér.