157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:12]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann bendir réttilega á, auðvitað þekktur fyrir að vera sanngjarn maður, að álagið á innviði okkar hefur aukist. Þess vegna er það þeim mun óskiljanlegra að borgaryfirvöld í Reykjavík hafi ekki lagt rækt við það að hverfin séu sjálfbærari, heldur eiginlega þvert á móti. Ég hef nú einhvern tímann rifjað hér upp t.d. málarekstur sem ég aðstoðaði við í mínu heimahverfi, Grafarvogi, þar sem atvinnurekendur í skipulögðu atvinnuhúsnæði voru lentir í miklum útistöðum við nýja íbúa í atvinnuhúsnæðinu því að það var verið að breyta skipulagi og veita leyfi til uppbyggingar íbúa einhvern veginn ofan í atvinnuhúsnæði. Þá myndast auðvitað togstreita því að það er kannski ekki gert ráð fyrir því að fólk búi þar sem er kaffihús sem er opið langt fram eftir degi og þar fram eftir götunum.

Varðandi útfærsluna og það hvernig við sjáum þetta til frambúðar og sérstaklega hjá Reykjavíkurborg þá hafa margir verið gagnrýnir á undirritun þessa samkomulags, samgöngusáttmálans. En mig langar að segja sem þingmaður Reykvíkinga, af því að ég reyndi að fylgjast vel með þessu máli, að það er auðvitað ekki síst forgangsröðunin og framkvæmdin hjá Reykjavíkurborg sem hefur ekki verið í lagi þar sem það var búið að lista upp ákveðin atriði, ákveðnar samgöngubætur sem áttu að vera í forgangi sem voru það síðan alls ekki. Í stað þess var farið í ákveðin og alls konar gæluverkefni og hugðarefni gamla meiri hlutans í Reykjavíkurborg. Núna bind ég miklar vonir við það að nauðsynlegum úrbótum verði forgangsraðað í þágu Reykvíkinga.