157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:16]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa mjög svo góðu spurningu. Hv. þingmaður þekkir kannski best sitt nærumhverfi. Hann býr í vesturhlutanum þar sem vandamálið er af allt öðrum toga, myndi ég ætla, af því að þar eru t.d. fjölmargir vinnustaðir í nágrenni. Ég myndi halda að það ætti t.d. að leggja rækt við það — nú eru t.d. uppi áform um að taka í burtu þá litlu atvinnustarfsemi sem þó er að finna t.d. uppi á Höfða. Hún á öll að víkja fyrir byggð. Og það virðist vera sem svo að það haldi áfram þessi þungi varðandi það að skipuleggja byggð í austri og atvinnusvæði í vestri. Það er óskiljanlegt hvernig enn einum vinnustaðnum og háskóla var komið fyrir í vesturhluta borgarinnar í stað austurhlutans, eins og hefði auðvitað verið nærtækara, þannig að við þurfum að fara að hugsa þetta upp á nýtt.

Ég vil sömuleiðis nefna það sem ég nefndi aðeins í ræðunni minni, sem er bara að leggja aftur rækt við þessa hverfiskjarna, hvernig svo sem það verður gert, a.m.k. ekki með því að breyta skipulagi á þennan hátt eins og hefur verið gert, frekar einhvern veginn að hvetja íbúa (Forseti hringir.) og bara atvinnurekendur til að sækja í þessa hverfiskjarna. Mig langar að nefna eitt lítið atriði í viðbót þótt ég sé komin fram yfir tímann, afsakið, virðulegur forseti, (Forseti hringir.) og það er skemmtun, svona hátíðarhöld innan hverfisins. Þetta hefur algerlega lagst af í mínu hverfi. Það var hægt að sækja viðburði marga hátíðisdaga (Forseti hringir.) innan hverfisins. Það eru svona lítil en samt stór atriði sem neyða okkur (Forseti hringir.) til að vera sífellt að fara út úr hverfinu.