samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir hennar innblásnu ræðu. Ég hjó eftir því að hún nefndi að við ættum að vera stórhuga og ég vil svo innilega taka undir þau orð. Mér finnst einhvern veginn að við höfum verið að hugsa frekar smátt undanfarin ár og jafnvel áratugi. Við byggðum okkar stærstu virkjanir, brýr, vegi og samgöngubætur — ég held að það sé flestallt bara fyrir 15 árum eða lengra síðan heldur en um 15 árum. Nú eru menn í vandræðum að útbúa hringtorg, smæstu hringtorg, og það kostar ærna fyrirhöfn, fjármuni og tíma. Þess vegna ætla ég að spyrja hv. þingmann um stórhuga framkvæmdir og þá er ég kannski að tala um samgöngusáttmálann fyrst. Telur hv. þingmaður að hann sé á vetur setjandi, samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins? Nú man ég eftir því að þegar ég var á þingi fyrir átta árum þá voru menn að ræða þetta. Mér finnst, og hv. þingmaður leiðréttir mig kannski, að það hafi í raun ekkert gerst síðustu átta árin hvað varðar samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það er afskaplega lítið í hendi, sýnist mér. Mislæg gatnamót. Jú, það er eitthvað uppi í Efra-Breiðholti í smíðum, ekki tekið í notkun enn. En ég man ekki eftir fleirum. Mislæg gatnamót, t.d. hjá Bústaðavegi og Breiðholtsbraut, það hefur ekkert gerst þar. Í Hafnarfirði ekki neitt. Á Reykjanesbrautinni er ekkert í gangi. Sundabraut — það er enn þá bara eitthvert hugmyndafræðilegt stig. (Forseti hringir.) Ég spyr: Er það bara liðin tíð að menn séu stórhuga í samgönguframkvæmdum?