157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:20]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég heyri að við erum sammála um að við eigum að vera stórhuga og það er ótrúlegt að rifja t.d. upp Hvalfjarðargöngin, ég rifjaði það upp áðan hvar við vorum stödd á þeim tíma. Það er kannski frekar nálægt okkur í tíma en einhvern tímann var mér sögð saga af því, af því að við höfum verið stórhuga þjóð og erum það, höfum verið það lengst af, að þegar Alþingishúsið okkar var byggt þá hafi það verið verulega stór hluti af ríkisútgjöldum af því að við vorum stórhuga og vildum gera hlutina almennilega. Varðandi samgöngusáttmálann, hvort við séum nógu stórhuga þar og hvort okkur sé eiginlega stætt með hann, ef ég skildi hv. þingmann rétt, þá fór ég aðeins yfir það áðan að gagnrýni á sáttmálann, af því að ég hef frekar mikið rýnt í hann, hefur ekki síst verið á framkvæmd hans, hvernig hann hefur verið útfærður og, eins og hv. þingmaður nefnir réttilega, hversu lítið hefur í raun hreyfst. Þetta snýst auðvitað um framkvæmdina, hvernig ráðist er í verkefnin. Það er eitt að skrifa undir, eins og ég sagði áðan, stilla sér upp á mynd og brosa, ráðherrar og oddvitar, en svo þarf að framkvæma og þar sátum við uppi með svartapétur sem var gamli meiri hlutinn í Reykjavíkurborg. Hann stóð í vegi fyrir því að farið væri eftir hreinlega forgangsatriðum í sáttmálanum eins og þau voru skrifuð út og þess vegna var ég að taka þessi atriði ítrekað upp hér á þingi. Ég myndi segja að vandamálið við samgöngusáttmálann sé, þótt auðvitað eigum við að ræða efni hans áfram, miklu frekar framkvæmdin eða það sem í rauninni hefur ekki verið framkvæmt á grundvelli samgöngusáttmálans. Vonandi horfir þar til betri vegar vegna nýs meiri hluta í Reykjavíkurborg.