samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur kærlega fyrir svarið. Ég ætla að halda áfram með stórhuga. Ef við erum stórhuga þá gerum við ekki Fossvogsbrú sem ekki er hægt að aka yfir. Ef við erum stórhuga þá leysum við vandamál höfuðborgarsvæðisins frekar með göngum en að þrengja vegi til að koma einhverju fyrir, með göngum. Er hv. þingmaður sammála mér hvað það varðar að samgönguvanda höfuðborgarsvæðisins megi leysa oftar — menn mega hugsa svolítið stórt — og leysa eitthvað af þessum vanda með göngum? Kannski Sundabraut? Vandamál höfuðborgarsvæðisins í hnotskurn er hversu mikið til þetta er einn ás samgangna, þ.e. vestur–austur. Stórhuga menn myndu hugsa: Gerum brú eða göng yfir á Álftanes (Forseti hringir.) og víkkum svolítið út samgöngumöguleika þeirra sem eiga leið til og frá miðborg Reykjavíkur.