157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:26]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða samgönguáætlun. Hér hafa í dag verið margvíslegar forvitnilegar umræður, t.d. um gildi þessarar samgönguáætlunar þegar við höfum nýleg dæmi um skarpar breytingar úr einni forgangsröðun yfir í aðra á milli samgönguáætlana. Þá virðist manni hlutverk samgönguáætlunar hafa skolast til ef markmiðið er að skapa fyrirsjáanleika um fyrirsjáanlegar framkvæmdir en síðan er henni kippt úr sambandi þegar pólitískar aðstæður leiða til þess. Þá þarf auðvitað að eiga sér stað einhvers konar umræða um hlutverk samgönguáætlunar og af hverju við verjum svona miklu púðri í plaggið ef það er síðan ekki að marka það. Þetta eru áleitnar spurningar en stjórnvöldum er sannarlega vandi á höndum að koma þessu í þannig farveg að það sé bæði hægt að vera með fyrirsjáanleika og líka ákveðinn sveigjanleika. Ríkisfjármálin eru sannarlega breytileg og þetta eru engar smá framkvæmdir sem við erum að tala um. Þegar við erum að tala um jarðgöng úti á landi þá eru það risavaxin verkefni þannig að auðvitað verða stjórnvöld að hafa þetta svigrúm. Við sjáum núna nýleg dæmi og manni finnst að það sé tilfinning fólks á svæðunum að þetta svigrúm gangi bara einfaldlega of langt; að það geti ekki verið svona auðvelt að breyta málunum alveg úr einu í annað, úr svörtu í hvítt, án þess að nokkur standi í raun og veru skil á því.

Þessi samgönguáætlun hefur síðan verið í samhengi við innviðafélag. Það er stórum spurningum ósvarað um innviðafélagið, hver aðkoma þingsins verður og um ákveðin lagaleg atriði, um eignarhald á stórum samgönguinnviðum og hvort það megi bara færa þá til inn í félög af þessum toga og hefja gjaldtöku án þess að lagaleg forsenda sé fyrir því; það eru atriði sem á eftir að ganga úr skugga um. Það er mjög forvitnilegt og síðustu daga höfum við fengið tækifæri hér í þinginu til að ræða þetta. Ég ræddi það í fyrri ræðu minni að þegar við erum að hugsa um landið í heild sinni þá segi ég í sambandi við — af því að auðvitað er sannarlega deilt um fjárfestingar, áherslur og forgangsröðun. En eitt þarf að vera á hreinu að mínu mati, og í stefnu Miðflokksins er það mjög skýrt, og það segi ég fullum fetum og óhikað sem höfuðborgarþingmaður: Ísland allt þarf að búa við eins greiðar samgöngur og við getum boðið upp á á hverjum tíma. Það er einfaldlega mikil skammsýni að halda að maður geti vanrækt þetta von úr viti án þess að það komi til með að bitna á byggðum landsins. Það er skuldbinding sem mér finnst að flestir íslenskir stjórnmálamenn átti sig nú á í víðara samhengi, að þessar samgöngur eru auðvitað grunnurinn að einhverju allt öðru, stærra og meira sem er grundvöllurinn fyrir lífið í landinu um allt land. Það eru auðvitað ákveðnir hagsmunir þjóðarinnar allrar að við séum ekki bara borgríki heldur séu traustar stoðir fyrir alvöru byggð annars staðar á landinu, dreifða byggð, þó með þéttbýliskjörnum, með alvöru nútímalegar forsendur til að lifa nútímalegu góðu lífi. Þannig tryggjum við sjálfbærni kynslóðanna á þessum stöðum.

Við erum hér að ræða um samgönguáætlun og við höfum fjallað um það að áherslan í höfuðborgarmálum og umferðarmálum hér — eins og hv. þm. Karl Gauti Hjaltason kom inn á þá er það auðvitað sláandi staðreynd að hugsa til þess að ekki hafi orðið á síðustu 10–20 árum, samhliða sprengingu í mannfjöldaþróuninni, samhliða sprengingu t.d. í aðstreymi innflytjenda til landsins og mikilli fjölgun íbúa í Reykjavík, sem hefur eiginlega alveg markast af því að innflytjendur flytji til borgarinnar, stórstígar framfarir í samgöngumálum. Þær hafa einfaldlega bara mætt afgangi sem verkefni á vegum stjórnvalda og sveitarfélaga.

Þetta er mikið umhugsunarefni og maður veltir fyrir sér hvar áherslan hefur verið. Nefnd hafa verið ýmis gæluverkefni, nefnd hafa verið einfaldlega allt önnur verkefni en samgöngubætur og svo eru nefndar samgönguaðgerðir sem eru þó ekki til þess fallnar að bæta umferðina, sem þyrfti þá að vera markmiðið. Þar var t.d. vikið að gatnamótunum í Árbænum þar sem, ef maður skoðar málið, var engin augljós þörf á að gera breytingar á beygjureinum eða aðreinum heldur miðaði það hreinlega að því að þrengja að bílnum þegar þessi gatnamót, eins og umferðin er, eins og daglegt líf borgaranna er, máttu ekki við slíkum þrengingum. Borgaryfirvöld, þ.e. gamli meiri hlutinn, fara engu að síður fram og nálgast málið svona. Maður myndi innilega vona að nálgun nýs meiri hluta verði öðruvísi.

Ég óttast að mér gefist ekki tími til að ræða það sem vakir fyrir mér. En ég vildi aðeins víkja að, virðulegur forseti, áhugaverðri tillögu til þingsályktunar, sem ég hef skráð mig á, sem hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir flytur um sjálfkeyrandi bíla. Sjálfkeyrandi bílar eru, eins og við höfum rætt, auðvitað á þessu stigi máls, eins og þessi ógurlega tækni öll og gervigreind er að þróast, miklu frekar orðin spurning um hvenær en ekki hvort þeir verði verulegur hluti af daglegri umferð. Ég hef borið þá von í brjósti — þótt ég sé síst af öllu svona blindur tæknidýrkandi og framfaratrúamaður á því sviði. Ég hef oft djúpar efasemdir um margvíslega framþróun á sviði tæknimála og fylgist ágætlega með þessari umræðu um gervigreindina og hvernig sú framþróun getur verið ábyrg og gagnast mannkyninu en ekki endað á því að tortíma því, en það er svo sem önnur saga. Ég geri bara þann fyrirvara á þessa umræðu. En sjálfkeyrandi bílarnir virðast vera óhjákvæmileg niðurstaða þessarar tækniþróunar.

Það má t.d. vekja athygli á því að margar Teslu-bifreiðar sem nú þegar eru í umferðinni á Íslandi eru að hluta til eins og sofandi sellur sem eru tilbúnar að fara af stað. Öll tæknin er næstum því fyrirliggjandi í nýjustu bílunum. Þegar tæknin er kannski búin að þróast aðeins betur, og auðvitað lagalega umgjörð og aðstæður í umferðinni eru orðnar þannig, þá er eiginlega bara hægt að setja á aðra stillingu í þessum bílum sem verða nú þegar komnir í umferðina. Þetta verður mun blandaðra ferli þar sem umferðin rennur saman við ekki sjálfkeyrandi bíla og sjálfkeyrandi bíla til að í raun og veru svona — þegar maður áttar sig á þessari staðreynd þá verður augnablikið ekki einhvern veginn: Jæja, núna förum við úr — hvað kallar maður bíla sem eru ekki sjálfkeyrandi? Þeir eru einfaldlega bílar — úr bílum í sjálfkeyrandi bíla. Það verður ekki þannig, heldur verður þetta miklu blandaðra ferli og blandaðri breyting. Þess vegna er ég bara stoltur af því að taka þátt í því að hvetja ráðherra til að huga vel að umgjörð þessara mála. Ef þessi breyting yrði, auðvitað, að sjálfsögðu eins og víða annars staðar, ef menn þyrftu ekki að keyra bíla sína, þá getur maður varla ímyndað sér hvaða breytingum það myndi valda á umferðinni, bílastæðaþörf og þörf einstaklinga á að eiga bíla, deilihagkerfi, nýtingu á tækniinnviðum, strætó eða panta strætó sem er hægt að deila og ég veit ekki hvað. Það eru alveg ótal möguleikar sem opnast. Yfirleitt vitum við ekki að breytingar verði fyrir fram. Við vissum ekki fyrir fram að þegar snjallsímarnir kæmu til þá myndi skapast forsenda fyrir hopphjólum. Maður gat ekki séð það fyrir. En allt í einu kemur augnablikið í tækninni og þá breytast samgöngumálin.

Þetta er kannski mikilvægt í þessari umræðu, hvort sem er í samgönguáætlun eða auðvitað líka á sveitarstjórnarstiginu, að Íslendingar, að mínu mati — auðvitað nálgumst við svona breytingar af ábyrgð og varúð og nálgumst þetta eins og fullorðnir einstaklingar. Ég held að það sé sannarlega millivegur þarna þar sem við erum þó opin fyrir nýrri tækni þannig að við sitjum ekki á hakanum þegar hún er komin af stað og getum nýtt okkur, eða haft einhver tilraunaverkefni hér eða hvar sem er, um sjálfkeyrandi bíla til að vera síðan bara fljót af stað þegar augnablikið rennur upp. Ég heyri það af þeim sem ferðast t.d. til Bandaríkjanna að þar getur þú einfaldlega skellt þér um borð og keyrt á milli staða. Í þéttri og rólegri umferð þá held ég að fæstir óttist þetta eitthvað meira en mennskan og breyskan bílstjóra. Ekki það, maður sér fyrir sér að áfram verði þörf á bílstjórum áratugi fram í tímann. En sem einhvers konar leið til að létta á umferðinni þá gæti þetta verið afar athyglisverð breyting sem verður líklega ekki umflúin.

Þetta ætlaði ég að nefna hér. Mér gefst ekki tími til að fara nánar í þingsályktunartillöguna en ég óska þá eftir því, til að komast að öðrum þáttum máls, að verða settur aftur á mælendaskrá.