157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:37]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir prýðisgóða ræðu. Þar sem tíminn er stuttur ætla ég að koma mér beint að efninu. Við erum bæði þingmenn Reykjavíkur og það blasir auðvitað við að einu kjördæmin sem hafa ekki verið með mjög mikið kjördæmapot í gegnum áratugina fyrir svona einstakar framkvæmdir eru Reykjavíkurkjördæmin tvö. Mér finnst gleðilegt að í umræðunni hér finnst mér hafa orðið breyting á þar sem mér finnst þingmenn Reykjavíkur vera sér meðvitaðir um að við þurfum að passa upp á okkar fólk. En þar sem hann minntist á innviðafélagið langar mig að spyrja hann, þar sem í tillögum þess félags í því frumvarpi, eins óskýrt og það er og óljóst um margt, er gert ráð fyrir að þau sértæku gjöld sem eru rukkuð, t.d. hérna í Suðvesturkjördæmi, á suðvesturhorninu, myndu fara í uppbyggingu annars staðar, og ég verð bara að fá að spyrja hv. þingmann: Heldur hann að það sé sanngjarnt? Er það vænlegt til árangurs í þessari samfélagslegu sátt sem svona uppbygging er?