samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Þetta er góð spurning og þetta er auðvitað kjarnaspurning í innviðafélagsnálguninni, hvernig svæðum verður skipt upp í skika að einhverju marki, eins og gert er, held ég, t.d. á Norðurlöndum þar sem það eru skilgreind samgöngusvæði þannig að veggjöld sem eru innheimt á einum stað eiga að vera notuð innan þess svæðis en ekki langt í burtu. Hvorki þegar ég var varamaður aðeins í fjárlaganefnd við umræðu um þetta né heldur þegar ég hitti sérfræðinga á þessu sviði gagnvart félaginu komst ég að skýrri niðurstöðu um það nákvæmlega hvernig þessu yrði háttað í þessari útfærslu. En í sambandi við veggjöldin er það líka hluti af þessari umræðu að stjórnvöld verða auðvitað að finna sanngjarnan punkt. Það er ekki hægt að hlaða bara veggjöldum ofan á veggjöld, hvort sem er í kílómetragjaldinu eða öðrum sköttum, það verður einhvers staðar að finna jafnvægi þar sem mönnum finnst ekki bara vera ósanngirni í málinu. Ég tala nú ekki um ef þeir peningar fara síðan á allt annað svæði. En ég þekki það hreinlega ekki nákvæmlega hver mörkin verða gagnvart því að peningar sem aflast í einu verkefni fari annað. Við vitum náttúrlega að í opinberum fjármálum er ekki leyfilegt að eyrnamerkja fé, þannig að þetta eru stórar spurningar.