157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:39]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Hann talar einmitt um þessi svæði eða svona radíus sem hefur verið talað um hér, en það er ekkert slíkt að finna í gögnum frumvarpsins um innviðafélagið. Það hefur verið rætt víða og vonandi er þetta eitt af því sem verður skoðað betur í frumvarpi þessa máls, sem að mínu viti er ekki tækt til lagasetningar eins og það lítur út í dag með of mörgum spurningum ósvöruðum.

Mig langar aðeins að venda kvæði mínu í kross. Ég veit að ég hef mjög lítinn tíma en af því að hann var að tala um tæknina langar mig að taka aðeins annan vinkil. Ég hef stundum verið hugsi yfir samspili ríkis og borgar í þessari skipulagsheild, þar sem samgöngurnar eru eitt, en líka bara skipulagi borgarinnar. Við vitum að auðvitað spilar mikið inn í hvar atvinnusvæðin eru og hvar fólk býr. Vegakerfið er í rauninni ekki sprungið nema það sé fullt í báðar áttir, morgun og kvöld. Það er ekki staðan hjá okkur, það væri hægt að rétta af kúrsinn. Mig langaði að spyrja örstutt, af því að það er auðvitað eitthvert samspil við ríkið þar sem ríkið borgar brúsann en hefur ekkert að segja um skipulagið, hvort hv. þingmaður sæi fyrir sér einhvers konar heildstæða nálgun. Ég veit að skipulagsvaldið er sveitarfélaganna, en hvort það sé hægt að horfa á þessa heild aðeins betur en hefur verið gert, því að þetta er einhvern veginn hrópandi ósamræmi.