157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:41]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Ég átti nú orðastað við hv. þingmann Sjálfstæðisflokksins úr Norðausturkjördæmi, varaþingmann sem kemur hérna inn og er í sveitarstjórnarmálum í Múlaþingi, og mér fannst tónninn vera sá hjá hv. þingmanni að meðal helstu verkefna sveitarfélaganna þar væri að standa í einhverju stappi við ríkisvaldið. Það er auðvitað gömul saga og ný að þarna eru ólíkir hagsmunir sem vegast á. Ríkisvaldið hefur sína sýn og sveitarfélögin hafa sína sýn. Sveitarfélögin byggja hana á daglegum veruleika eins og hann blasir við og ríkisvaldið byggir þetta á hagsmunum ríkisvaldsins eins og það sér það, þannig að þetta fer ekki alltaf alveg saman. Í sambandi við að skipuleggja byggð þannig að hún flæði betur þá er það oft verkefni sem hefur vaxið fólki í augum að raunverulega gera tilraunir með t.d. breytta opnunartíma, breytta afgreiðslutíma opinberra stofnana og alls konar svona til þess mögulega að skipuleggja lífið betur en ekki bara að setja götu og segja: Sjáum til. En það þarf rosalega samstillt átak. Kannski hefst það hér.