157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:42]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans yfirferð og ræðu. Það er áhugavert og ánægjulegt að sjá hvað þingmenn á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík og í Kraganum, hafa tekið virkan þátt í þessari umræðu um samgönguáætlun sem mér skilst að sé oft ekki. En það segir okkur það hvað samgöngumálin á þessu svæði vega orðið gríðarlega þungt og sífellt þyngra. Við sáum það líka í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna að samgöngumálin, sem tengjast náttúrlega skipulagsmálum, bílastæðum og því öllu, voru eiginlega heitasta málið í kosningabaráttunni, ekki síst í Reykjavík, en líka á svæðinu öllu. Það voru, held ég, mjög margir flokkar og þar á meðal Miðflokkurinn sem lögðu til eða tóku undir að það þyrfti að endurskoða samgöngusáttmálann. (Forseti hringir.) Mig langaði til að fá kannski stutt viðbrögð frá hv. þingmanni við því hvað það væri helst í sáttmálanum sem hann sæi fyrir sér að væri brýnast að endurskoða á raunsæjan hátt.