samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Já, maður hefur mínútu. Ég vék áðan í grófum dráttum að t.d. skiptingu fjármuna og þeirri sýn sem liggur til grundvallar því að hægt sé að segja sem svo að við verjum 40% fjármuna í samgöngumáta sem hefur verið í svona minnkandi notkun og er einhvers staðar í kringum 5%, ég held að strætó liggi þar sirka. Að mínu mati eru tækifæri til umbóta á sviði almenningssamgangna en auðvitað þarf samgöngusáttmálinn engu að síður, ef hann á raunverulega að greiða fyrir umferð, að vera raunsær gagnvart því hver notkunin verður. Þar gæti ég nefnt t.d., ef mér gæfist tími til, sem ég reyndar efast um, að ég tel að stóra breytingin t.d. gagnvart strætó hafi verið hopphjólin. Það eru mjög margar ferðir farnar með þeim af því að fólk fær frelsið til að velja bara hvenær það fer af stað. Það þarf alveg að labba á einhvern stað en það er einhvern veginn þessi frelsistilfinning sem það hefur gagnvart þeirri notkun. (Forseti hringir.) Það kemur einhver tæknibylting og breyting og ef við erum alltaf eftir á með fjármagnið og áætlanirnar og sýnina (Forseti hringir.) þá erum við mögulega að sturta peningum í eitthvað sem verður ekki notað. Þetta eru áhyggjurnar, einlægar áhyggjur.