samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég tók einmitt þetta dæmi áðan um að enginn hafi séð það fyrir þegar snjallsímar með interneti komu til að þeir yrðu grundvöllurinn að því að t.d. hopphjólaaðgengi yrði svo þægilegt og einfalt í notkun. Rétt eins og það gerist þá sér enginn fyrir hvaða mögulegu samfélagsbreytingar munu fylgja sjálfkeyrandi bílum og þeirri tækni. Það er algjörlega ómögulegt að sjá það fyrir. Maður getur auðvitað gert sér ýmsar hugmyndir. Ef bílar geta farið um allan daginn án þess að það sé bílstjóri í þeim þá stóreykst auðvitað framboð af akandi bílum og þar með, ef við horfum á þetta út frá bara lögmálum framboðs og eftirspurnar, er auðvitað betur hægt að sinna eftirspurninni og sömuleiðis er pláss sem sparast með því að bílum þurfi ekki að vera lagt alls staðar og það þurfi ekki hver og einn — ef þú horfir á umferðina, horfir á þetta alveg utan frá eins og þú værir geimvera, þá myndirðu sjá mjög vel að það er rosalega illa skipulagt að hver og einn sé á sínum eigin bíl. (Forseti hringir.) Það væru t.d. deilibílar sem myndu sækja nokkra o.s.frv., á meðan það er þægilegt og þú getur séð það í appi og (Forseti hringir.) hann kemur og sækir þig beint upp að dyrum, allt þetta gæti liðkað rosalega fyrir. (Forseti hringir.) Eins konar skólabílar fyrir fullorðið fólk — ég meina, maður er á tilgátustigi.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmann á að ávarpa forseta í upphafi ræðu.)