157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:48]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir hans mjög svo góðu ræðu. Mig langaði að kasta því aðeins til hv. þingmanns að þrátt fyrir að samgöngusáttmálinn sé umdeildur og menn hafi mismunandi skoðanir á samningi sveitarstjórna við ríkið þá er það samt sem áður þannig að víðs vegar um land hafa menn séð að samgönguáætlun ein og sér — jú, kannski fyrstu þrjú, fjögur árin, þar er eitthvað sem er á hendi festandi, en hvað varðar einhverja framtíðarsýn þá erum við bara að sjá það núna í samgönguáætlun að alls konar verkefni detta út, detta inn, forgangsröðun er svikin og annað. Sums staðar hefur verið kallað eftir því að landsbyggðin fái bara álíka samgöngusáttmála við hið opinbera um einhvern fyrirsjáanleika til kannski 10–15 ára í staðinn fyrir þessa samgönguáætlun, það væri einhvers konar sáttmáli. Mig langar að spyrja hv. þingmann svona um þessa hugmynd: Hvað finnst honum um það ef það yrðu gerðir samgöngusáttmálar um uppbyggingu samgönguinnviða víðar um land?