samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans fyrra svar við spurningu minni. Þá langar mig kannski aðeins að velta fyrir mér í rauninni hinni hliðinni, bara samgönguáætlun yfirhöfuð, fyrstu fimm árin, sem er kölluð framkvæmdaáætlun og síðan aðgerðaáætlun. Í staðinn fyrir að vera að búa til einhvers konar væntingar og væntingastjórnun og annað, er í rauninni ekki langbest fyrir okkur að ræða bara þessi fimm ár og ársetja þá áætlun? Síðan er bara svona listi hér til hliðar: Þetta er það sem síðan á eftir að gera, en það er ekkert verið að setja það niður á einhver ár. Ég tek bara sem dæmi að Grímseyjarferjan er sett 2031. Það eru samt engir peningar í hana. Þetta er bara einhver óskalisti Vegagerðarinnar, það eru engir peningar settir í þetta. Er ekki bara best að við ræðum bara framkvæmdaáætlun í staðinn fyrir einhvers konar samgönguáætlun, framkvæmdaáætlun samgangna fyrstu fimm árin? Svo er hér stór listi yfir ýmislegt sem væri gaman að gera og verður þá gert einhvern tímann eftir þessi fimm ár.