157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:52]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að hv. þingmaður sé síst á villigötum með þessi sjónarmið og maður getur talað út frá sínum sjónarmiðum að bara hér á höfuðborgarsvæðinu eru ótal framkvæmdir, stofnvegaframkvæmdir, sem hafa einmitt hlotið þessi örlög sem hv. þingmaður talar um. Það er vísað til þess að einhvern tímann árið 2028 — nú erum við reyndar farin að nálgast það en var kannski raunin fyrir nokkrum árum, en ef það væri núna sagt 2032 eða 2034 þá væri líklegt að það ætti að fara af stað. En það er nú eitthvað í mannskepnunni sem sér slíkt og getur ornað sér við þá tilhugsun að þetta gæti orðið raunveruleiki. En ef menn ætla að vera ískaldir og heiðarlegir um hvað við erum að gera þá erum við sannarlega bara að gefa fyrirheit um eitthvað sem ekkert liggur fyrir um hvort verði hægt að standa við.