samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða ræðu og mig langar til að halda áfram umræðunni um tæknibreytingar og tæknibyltinguna sem fram undan er í samhengi við sjálfkeyrandi bíla. Manni finnst áhugavert þegar maður hugsar um borgir eins og San Francisco og Los Angeles að þar eru komnir svo margir sjálfkeyrandi bílar. Þetta er enn þá ekki farið að hafa áhrif á verð þó að að sjálfsögðu séu þetta mannlausir bílar, þ.e. bílarnir eru enn þá það dýrir í framleiðslu, það eru miklar öryggiskröfur. En í samhengi við fjárfestingar í almenningssamgöngum þá höfum við líka séð í mörgum borgum þar sem Uber kemur, sem er einmitt með þessar deililausnir sem eru mjög þægilegar og létta að hluta til á, að það eru fleiri bílar sem keyra, það hefur orðið aukning í fjölda bíla á vegunum sem kannski hefur ákveðin neikvæð áhrif (Forseti hringir.) á vandamálin sem við erum líka að leysa. Hvaða spurningar koma upp í huga hv. þingmanns hvað þetta varðar?