samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Já, ég held að þetta sé mjög verðugur punktur sem hv. þingmaður ber hér á borð í sambandi við það að það verða einhverjar tæknibreytingar og forsendur breytast fyrir því að sinna einhverjum ákveðnum verkefnum með bílum og þá fjölgar bílum. Við höfum séð þetta hér og maður getur séð fyrir sér að öll þessi sendistarfsemi hafi áhrif, þ.e. að senda mat á milli staða, af veitingastöðum, sem er tiltölulega nýtilkomið hérna á Íslandi, það sé svona yfirdrifið mikið gert af því að fólk sé hreinlega að kaupa sér bragðaref með Wolt eða eitthvað slíkt. Þetta er ákveðinn munaður sem fólki finnst þægilegt að hafa í sínu lífi en þetta útheimtir starfskraft, mikinn starfskraft og auðvitað aukna umferð — ef við sjáum það fyrir okkur, ég á mjög erfitt með að fullyrða hvort þetta sé raunverulegur hluti af umferðinni. En allir slíkir bílar í umferðinni bætast við flæðið og þetta er glænýtt verkefni sem enginn var eiginlega beint að sinna, það bara varð til. Reyndar hlýtur fólk, fyrr á dögum, að hafa ferðast út í búð og keypt sinn bragðaref sjálft. Þetta er auðvitað dæmi um það að þegar möguleikinn er fyrir hendi getur mannskepnunni líka dottið í hug að fara að gera alls konar vitleysu, (Forseti hringir.) bara bæta við neyslubrjálæðið. Þannig að þetta er (Forseti hringir.) sannarlega umhugsunarefni við tæknina sem ég ræði vonandi í næstu mínútu sem ég fæ.