157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:56]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar vangaveltur. Ég get tekið undir það sem hefur komið fram hérna í umræðunni að við erum eftir á í fjárfestingu og bara hugsun þegar kemur að samgönguáætlun, þegar við horfum dálítið á það hvernig við tökum á móti framtíðinni. Ný tækni er t.d. ekki megináhersla, ef við horfum bara á samhengið við höfuðborgarsvæðið. Ég held samt sem áður að þó að við munum sjá aukningu í sjálfkeyrandi bílum þá munum við alltaf, ef maður horfir kannski 20, 40 ár fram í tímann, líka þurfa almenningssamgöngur, finnst manni líklegt. Mig langar til að spyrja hv. þingmann: Telur hann að við séum nógu framsýn bara í því formi sem verið er að hugsa um í dag? Það er alltaf verið að miða við tölur og ákveðnar spár en ég hef sagt að ef það hefði verið miðað við bílafjöldann sem fór yfir brýrnar í Öræfunum (Forseti hringir.) í kringum 1970 — sú fjárfesting gerði ekki ráð fyrir ferðamannastraumnum og landflutningunum og öllu í dag. (Forseti hringir.) Er formið sem við erum að fjárfesta í dag nógu raunhæft?