samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Það er erfitt að vera háfleygur þegar maður hefur bara mínútu til þess en ég held að Henry Ford sé eignuð sú setning eða hann á hafa sagt að ef hann hefði spurt fólk hvað það vildi þá hefði það óskað sér að fá hraðskreiðari hesta. Hann þurfti kannski að hugsa svolítið fyrir það, að fá bíla. Það er auðvitað að mörgu leyti þessi staða sem við erum í núna, það er líklega eitthvað handan við hornið sem við getum mjög illa gert okkur grein fyrir á þessu stigi. Og þannig að maður beintengi það nú við samgönguáætlunina sjálfa þá er það alvarlegur punktur, sem ég alla vega ber hér á borð, að fara af stað með mörg hundruð milljarða króna fjárfestingar í verkefnum sem byggja á hugsun sem við erum ekki viss um að muni raunverulega eiga við eftir 10–20 ár. Kannski verður lausnin miklu frekari deilistrætóar sem þjóta hérna um, miklu smærri, sjö í einu og fara bara til þín þegar þú pantar þá í stað þess að þú sért alltaf að bíða eftir einhverju á stoppistöð. Alls konar svona sem er bara mjög erfitt að gera sér grein fyrir. Þess vegna hugsar maður hvort menn nálgist ekki slíka fjárfestingu af varúð ef það er ekki augljós ábati af henni, svo maður sé nú ekki bara á svona sveimhuga nótum heldur í sjálfri samgönguáætlun.