samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Fram að þessu hef ég aðeins fengið tækifæri til að halda tvær stuttar ræður um þetta stóra mál sem samgönguáætlunin er. Þetta er mál sem menn gerðu kannski ekki beinlínis ráð fyrir að kæmist inn á þetta þing en eins og með mörg vanhugsuð og ókláruð mál ríkisstjórnarinnar er það komið hér til umræðu. Ég hyggst halda áfram þar sem frá var horfið en ég var byrjaður að ræða borgarlínuna og það mikla verkefni sem er henni tengt og yfirgnæfir í rauninni allt annað. Þar liggur langstærsti hluti kostnaðarins, kostnaður sem enginn veit enn sem komið er hversu mikill verður, og um leið er ofuráhersla á það verkefni hindrun gagnvart öðrum samgönguverkefnum, ekki hvað síst á höfuðborgarsvæðinu en um leið annars staðar því að skattgreiðendum um allt land er ætlað að borga fyrir þetta vanhugsaða verkefni.
Okkur er nú sagt að til standi að endurskoða áformin um borgarlínu, endurskoða þennan svokallaða samgöngusáttmála. Þetta höfum við heyrt áður, eins og ég nefndi í síðustu ræðu minni, og það fór ekki vel. Þegar loksins var kallað til endurskoðunar, þegar á daginn kom að ekkert hefði staðist hvað þetta verkefni varðaði, þá skilaði endurskoðunin uppfærðri áætlun með auknum útgjöldum og auknum umsvifum þess apparats sem byggt hefur verið upp í kringum borgarlínu. Við verðum að vona það besta. Við verðum að vona að áformuð endurskoðun skili sér í raun. En ég leyfi mér að hafa efasemdir og ég ætla að útskýra hvers vegna.
Ég ætla að nota dæmið af Kópavogi. Í umræðu fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar var víða rætt um að nauðsynlegt væri að endurskoða þessi áform. Frambjóðendur úr ýmsum flokkum hétu því, þar með talið í Kópavogi. Meðal þeirra var Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri sem vann stóran sigur í kosningunum í framhaldinu. Flestir, ef ekki allir, frambjóðendur í Kópavogi voru þó sammála um að það að nokkur atriði væru algjör forsenda í áformaðri endurskoðun. Aðalatriðið væri að borgarlínan mætti ekki verða til þess að þrengja að annarri umferð sem, eins og ég hef rakið áður, gengur gegn hugmyndinni, forsendum borgarlínu. Í því efni höfðu menn helst áhyggjur af einum vegkafla í Kópavogi sem er Borgarholtsbraut. Þrátt fyrir nafnið, Borgarholtsbraut, er þar um að ræða hverfisgötu sem liggur í gegnum Kársneshverfið í Kópavogi sem er að mestu leyti elsta hverfi Kópavogs. Þar er ekki með nokkru móti hægt að koma fyrir akreinum, hvað þá einhverju miðsvæði og stoppistöðvum, fyrir borgarlínu án þess að þrengja að annarri umferð og ekki nóg með það heldur þarf líka að fjarlægja gangstéttir og fara inn í garð þeirra húsa sem liggja að Borgarholtsbrautinni. Allir frambjóðendur virtust sammála um að það væri ótækt að þrengja að umferð um Borgarholtsbraut en það væri eitthvað sem þyrfti að finna út úr. Gott og vel. En hvernig ætla menn að finna út úr því? Því þessi gata liggur að, og ekki önnur, ekki þeim megin, krúnudjásni borgarlínunnar, svokallaðri Fossvogsbrú sem hefur margfaldast í verði og hafði gert það áður en framkvæmdir hófust. Það þarf að komast að þessari brú sem er eins konar miðpunktur í þessum borgarlínuhugmyndum. Það verður ekki séð að það verði gert öðruvísi en að fara um Borgarholtsbraut. (Forseti hringir.)
Frú forseti. Ég var nú bara rétt að byrja á þessari stuttu umfjöllun um eitt afmarkað dæmi sem varðar borgarlínu til að útskýra heildina og bið um að vera settur aftur á mælendaskrá.