157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:05]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hans góðu ræðu hér og er ræðutíminn farinn að styttast. Mig langaði hins vegar aðeins að ræða við hv. þingmann af því að hann var að tala um Fossvogsbrúna. En nú er það svo að í kjördæmi okkar, míns og hv. þingmanns, er önnur brú sem heitir Jökulsá á Fjöllum. Hún er byggð 1947 og er ekki sett á dagskrá fyrr en á öðru til þriðja tímabili samgönguáætlunar. Sú brú er nú þegar farin að hamla atvinnulífinu í Norðausturkjördæmi og þungaflutningum því að það eru komnar þungatakmarkanir á brúna. Nú er ekki lengur hægt að nýta og keyra um brúna og fara með þungar vélar um hana, eins og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson þekkir vel. Það er ekki hægt að nýta brúna sem skyldi og það eru miklar þungatakmarkanir á henni. Þessi brú er orðin algjör flöskuháls fyrir atvinnulífið og verðmætasköpun í kjördæminu. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann teldi ekki eðlilegt að svona mikilvæg framkvæmd sem er á þjóðvegi 1 og er farin að hamla atvinnuuppbyggingu í kjördæminu og þá að sjálfsögðu aðföngum inn í kjördæmið o.s.frv. — gott dæmi eru steyptar einingar sem fara frá Egilsstöðum til Akureyrar í nýtt og glæsilegt hótel við Skógaböðin. Það er bara hægt að nýta helminginn af burðargetu bílsins af því að brúin á Jökulsá á Fjöllum þolir ekki flutninginn. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki að það sé í rauninni algerlega nauðsynlegt að flytja þessa framkvæmd framar í áætlunina.