157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:07]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég sé ástæðu til að þakka hv. þingmanni sérstaklega fyrir þessa spurningu. Þetta er eitt af mörgum, því miður, stórum óleystum málum í okkar kjördæmi samkvæmt þessari samgönguáætlun. Eins og ég gat um í fyrstu ræðu minni þá hef ég hug á því að fara í seinni ræðum yfir ákveðin verkefni. Ég vildi byrja á því að tala um stóru myndina og þennan stóra óða fíl í herberginu sem skemmir fyrir öllu hinu, sem er m.a. og sérstaklega borgarlínan. Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum er, eins og hv. þingmaður segir, ónothæf til þess verks sem er eðlilegt að ætla henni í nútímanum. Þetta er vissulega falleg brú, byggð á þeim tíma þegar menn hugðu enn að fagurfræði, en dugar ekki. Fyrir vikið ætti að vera forgangsatriði að koma á — hún þarf ekki að vera falleg — annarri greiðri leið yfir þessa miklu á sem skilur að tvo meginhluta kjördæmis okkar, Austurlandið og Norðurlandið, og þá má nýta um gömlu brúna fyrir hestamenn og útlendinga sem óðir fara upp á hálendi á reiðhjólum eða gangandi. Það er algjört grundvallaratriði sem hv. þingmaður nefndi, þetta er farið að skerða verðmætasköpun. Með öðrum orðum: Það er að verða tjón á hverjum einasta degi af því að þessi flöskuháls hefur ekki verið lagaður. Þetta dregur úr uppbyggingu sitt hvorum megin við brúna og fyrir vikið úr verðmætasköpun í því kjördæmi sem, ég held að mér sé óhætt að segja, skilar mestu til þjóðarbúsins í gjaldeyristekjum.