157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:09]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hans fyrra svar. Ég tek undir með hv. þingmanni að brúin er falleg, þetta er falleg brú og ég vona að mönnum lánist að byggja brúna, eins og mér skilst að eigi að gera aðeins neðar þar sem bankarnir eru hærri og þá væri ekki leiðinlegra að þær kölluðust á eins og tvær systur í svipuðum stíl og svipuðum anda; tvær fallegar brýr. Við erum sammála um það, ég og hv. þingmaður: Að byggja fallegt er ekki dýrara. Þetta er bara spurning um hönnun og þetta er spurning um hvaða stíl og annað þú vilt hafa, en það er ekki dýrara að byggja fallegra og jafnvel ódýrara stundum að byggja klassískt heldur en nýmóðins. Það forðar líka yfirleitt frá myglu, leka og flötum þökum. En látum það liggja milli hluta. Við erum komin í aðra sálma. En það sem mig langaði kannski að ræða í seinni spurningu og spyrja hv. þingmann: Finnst hv. þingmanni það sanngjarnt eða eðlilegt gagnvart íbúum Fjallabyggðar og Fljóta, og síðan bara í Norðausturkjördæmi, að það eigi að reyna að finna peninga í Fljótagöng í haust? Það eru engir peningar í Fljótagöng, ekki inni í fjármálaáætlun, ekki neins staðar. Það er verið að segja við íbúa og búið að blása í lúðra með fánahillingum og barnakór að hér eigi nú loksins að fara að bora göng og annað. Svo kemur á daginn að það eru engir peningar í verkefnið. 20 milljarðar — það veit enginn hvar á að ná í þessa peninga. Er þetta boðlegt gagnvart íbúum Fjallabyggðar og Fljóta?