samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Mér líkar hvernig hv. þingmaður hugsar og tek heils hugar undir með honum varðandi forgangsröðun, brúarsmíði og fagurfræði. En af því að hv. þingmaður beinir sjónum sínum að Fljótagöngunum, sem eru ekki fjármögnuð ólíkt því sem fullyrt var á blaðamannafundi sem boðað var til með pompi og prakt þegar drög að samgönguáætlun voru kynnt, þá tel ég rétt að setja þetta í samhengi við fyrri spurningu hv. þingmanns. Þessi nauðsynlega og mjög aðkallandi samgöngubót, sem er ný brú yfir Jökulsá á Fjöllum, er ekki fjármögnuð heldur. Raunar má segja að landið um kring séu aðkallandi stórverkefni ekki fjármögnuð þvert á það sem fullyrt var þegar samgönguáætlun var kynnt. Það sem gerir þetta enn þá verra er að nú er leitast við að slá ryki í augu almennings með umræðu um svokallað innviðafélag sem hefur augljóslega ekki verið hugsað til enda en er notað sem tylliástæða til að geta haldið því fram að eitt og annað sé fjármagnað, jafnvel þótt það sé ekki að sjá að þetta áformaða innviðafélag muni leysa Fljótagöng, nýja brú yfir Jökulsá á Fjöllum eða fjölmörg önnur stór og aðkallandi verkefni sem halda aftur af verðmætasköpun í þessu landi. Það er ekki hægt að aðskilja þessa tvo hluti, þessa samgönguáætlun og innviðafélagið. (Forseti hringir.) Það er ótækt, herra forseti, að eitt mál sé notað til að kasta ryki í augu almennings varðandi annað mál.