157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:14]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Nú er tíminn farinn að styttast verulega og það þarf svolítið að spara orðin. En mig langar að taka upp þráðinn, við höfum verið að ræða tæknina núna í kvöld. Hv. þingmaður og ég erum saman á þingsályktunartillögu, sem var dreift hér í dag, einmitt um sjálfkeyrandi bíla og í kvöld höfum við aðeins verið að koma inn á þá tækni. Síðast þegar við vorum hér í andsvörum, ég og hv. þingmaður, þá spurði ég einmitt út í viðhorf hans til þessa. Sjálfkeyrandi bílar eru náttúrlega bara eitthvað sem blasir við og eitthvað sem við þurfum að búa okkur undir. Niðurstaðan varð sú að við erum saman á þessari þingsályktunartillögu sem dreift var í dag.

Mig langar til að spjalla aðeins nánar um það, því að þetta er svo spennandi. Það er svo mikið að gerast og svo virðist sem að við Íslendingar séum að dragast aftur úr og verða dálítið langt á eftir ýmsum nágrannaríkjum. Auðvitað er þessi tækni og kunnátta og notkun orðin langmest í Bandaríkjunum, eins og við höfum verið að ræða hérna, en Evrópuríkin koma hvert á fætur öðru inn í þetta umhverfi. Síðast í morgun samþykktu Danir sjálfstýribúnað Teslu, Litáen og Eistland gerðu það í síðasta mánuði og þar fram eftir götunum. Við erum orðin dálítið aftarlega í því að undirbúa okkur fyrir þessa tækni. Mig langaði að fá svar frá þingmanninum um hvort hann hafi áhyggjur af því að við höfum hreinlega ekki verið búin að huga að þessu fyrr og að önnur nágrannaríki og flest Evrópulönd séu komin miklu lengra en við. Hvort það sé áhyggjuefni.