samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég sé ástæðu til að þakka hv. þingmanni fyrir tækifærið til að bregðast við þessu því að ég er svo sannarlega sammála hv. þingmanni um mikilvægi þess að huga að framtíðinni, ég tala nú ekki um þegar okkur gefst tækifæri til að nokkurn veginn gefa okkur í hvað stefnir, því að það er ekki alltaf svo. Þá ættum við nú aldeilis að nýta reynslu annarra og búa okkur undir þá tiltölulega fyrirsjáanlegu framtíð sem stefnir í og ég er þakklátur fyrir að fá að vera meðflutningsmaður á máli hv. þingmanns. Ég verð að bæta því við að ég hef ekki bara áhyggjur, mér gremst að sjá það hvað við virðumst á hinum ýmsu sviðum vera að dragast aftur úr á Íslandi hvað það varðar að líta til framtíðar, að reyna að búa okkur undir framtíðina, og ekki bara búa okkur undir hana heldur taka þátt í að leiða hana.
Hér var reyndar komið á svokallaðri framtíðarnefnd á Alþingi. Hún fjallaði aðallega um, held ég, kenningar Gretu Thunberg í loftslagsmálum og eitthvað svipað. En þegar við sjáum í hvað stefnir annars staðar, að við skulum ekki grípa þau tækifæri og byrja að laga okkur að því heldur þess í stað eyða, eftir því sem stefnir í, óhemjutíma og fjármagni í fyrirkomulag sem allir geta gefið sér að er ekki bara við það að verða úrelt heldur er í rauninni orðið úrelt — því að þessi 19. aldar hugmynd um borgarlínuvagnana er orðin úrelt nú þegar, svo ekki sé minnst á það að ríkinu skuli detta það í hug að setja af stað verkefni sem enginn hefur hugmynd um hvað muni kosta. Nei, nei, þeir vita bara að það verður óendanlega dýrt og að skattgreiðendur muni þurfa að bera reikninginn til allrar framtíðar, m.a. með það að markmiði að þrengja að annarri umferð, þar með talið væntanlegra sjálfkeyrandi bíla.