samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Það er óhjákvæmilegt að þetta dragi stórkostlega úr þörfinni fyrir hefðbundnar almenningssamgöngur eins og þær eru núna. Fyrir vikið er það orðið enn þá augljósara en svo sem var, að áformin um að færa nýtingu almenningssamgangna úr 4% upp í 12% vegfarenda, sem var reyndar reynt með strætó með gríðarlegum tilkostnaði, munu ekki nást. Fyrir vikið verða þessir risaborgarlínuvagnar á ferðinni hér, þrengjandi að umferðinni, hálftómir eða galtómir, innan ekki svo margra ára ef haldið verður áfram með þessi áform. Ég ætlaði einmitt að nefna það sem hv. þingmaður kom inn á, að nú þegar eru komnir sjálfkeyrandi smástrætisvagnar. Það verður eflaust hérna líka. Annað er að fólk er margt hvert farið að venja sig á að panta ýmsar vörur heim, jafnvel mat. Það verða án efa líka að miklu leyti sjálfkeyrandi bílar þar sem verða bara hólf, kæli- eða hitahólf, þar sem hver og einn getur farið út að bílnum, stimplað inn sitt númer og náð sér í mat eða hvað sem verið er að sækja. Fram hjá þessu er öllu litið af því að menn eru einfaldlega ekki að reyna að hugsa fram í tímann. Þeir eru fastir í sinni hugmyndafræði, svo fastir að þeir loka viljandi augunum fyrir öllu sem getur truflað það sem þeir ákváðu fyrir jafnvel 15, 20 árum að yrði að verða og kjósa að gerast blindir á alla þróun í millitíðinni. Ég tek bara undir og fæ að vísa í orð hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar hér fyrr í umræðunni: Af hverju geta menn ekki bara verið eðlilegir, herra forseti? Maður biður ekki um meira en það að menn séu eðlilegir og leitist við að a.m.k. kanna hvað er skynsamlegast að gera við hverjar aðstæður.