samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Það er ekkert óeðlilegt þegar þingheimur kemur saman til að ræða samgönguáætlun að þá þurfi margir þingmenn að tjá sig um þessa áætlun. En ég held að sjaldan hafi þörfin verið eins mikil til að fara ítarlega yfir efni máls, ekki síst í ljósi þess að nú erum við í rauninni að ræða þrjú mál. Við erum þó ekki farin að ræða þriðja málið, sem er fjármálaáætlun, en það eru tvö samhangandi mál hér og það er frumvarp um innviðafélag og síðan samgönguáætlun. Þetta talar beint saman og þarf að ræðast saman.
Það vantaði ekki yfirlýsingarnar um að nú væri verið að ræsa vélarnar, virðulegur forseti. Nú loksins var eins og það væri komin ríkisstjórn sem í fyrsta skipti í lýðveldissögunni ætlaði að stinga niður skóflu, og það fullfjármagnað. En vélarnar hafa þagnað, hafa heldur betur hljóðnað og nú fer ekki mikið fyrir því að hv. stjórnarliðar komi hér upp og þylji slagorðin, af því að það stendur ekki steinn yfir steini, því miður. Ég hef farið yfir það í ræðum mínum hvað ég telji í rauninni að samgönguáætlun sé orðin gallað plagg að því leyti að það væri miklu nær að við værum bara að ræða hér fimm ára áætlun og síðan væri listi yfir framkvæmdir í staðinn fyrir að gera 15 ára áætlun, búa til einhvers konar væntingastjórnun og síðan kemur bara nýr ráðherra með nýjar áherslur og þá allt í einu breytist allt. Þá er miklu betra að við förum bara í framkvæmdir og ákveðum framkvæmdir sem við erum svo ábyggilega að fara í og setjum þær niður á ár, og upphæðir, en látum hitt svo bara vera lista sem þarf að fara í.
Það er í þessari áætlun og í breytingartillögu meiri hlutans á bls. 18 ansi merkileg tafla. Þessi tafla er upp á ýmsar framkvæmdir um allt land sem ná til þess að ef Kjalarnesvegur verður tekinn út úr samgönguáætlun og settur inn í innviðafélagið verði til rými upp á 6,3 milljarða, sem eru áætlaðir hér í samgönguáætlun, sem fari í Kjalarnesveg, hverfi svona og allt í einu verði til 6,3 milljarðar. Hér á bls. 18 er listi og fyrsta árið, 2027, á að ráðstafa einum þriðja, 2,1 milljarði, af þessum 6,3 milljörðum. En, virðulegur forseti, það er ákveðinn galli á gjöf Njarðar. Innviðafélagið getur ekki tekið inn samgönguvegi og farið að rukka veggjöld þar sem ekki er boðið upp á hjáleið. Innviðafélagið mun mögulega í framtíðinni geta tekið inn þennan veg samhangandi við Hvalfjarðargöng og Sundabraut, en það er ekki að fara að gerast í haust. Það er ekki að fara að gerast í haust að þessir 6,3 milljarðar verði allt í einu til.
Hvað erum við þá að ræða hér? Töflu þar sem er verið að lofa einbreiðum brúm við Fossála, Öxi, hrunvarnir á Suðurfjarðarvegi, farnet á Vestfjörðum, hafnarframkvæmdir í Þorlákshöfn, ekjubrú í Vestmannaeyjum, aðflugsljós á Akureyrarflugvelli og svo mætti lengi telja, 50% hækkun á sjóvörnum. Allt á þetta að vera á næsta ári, þessar framkvæmdir, að hluta eða öllu leyti, og það er engin innstæða fyrir því. Þetta er ekki að fara að gerast. Af hverju erum við að ræða hér einhverja töflu og tölur og úthlutanir í verkefni sem við vitum að eru ekki að fara að gerast? Og það sem verra er, virðulegur forseti, er að það er ekki einu sinni búið að finna peninginn í Fljótagöngin. Nú byrjum við að bora — og svo allt í einu finnst ekki peningurinn, 20 milljarðar, í að byrja að bora.