samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég hef nú tekið þátt í að ræða ansi margar samgönguáætlanir hér í þinginu síðan ég settist hér inn fyrir núna yfir 19 árum. Þær hafa verið misáreiðanlegar og misjafnlega hefur verið farið eftir þeim skilaboðum sem þingið hefur sent til ráðherranna og framkvæmdarvaldsins. Til að mynda gerði þingið miklar breytingar á samgönguáætlun hérna 2019 þar sem við lögðum til og var samþykkt af allri nefndinni, það var þverpólitísk samstaða um að fara allt aðrar leiðir í fjármögnun. Ráðherrann kaus að fara ekki eftir skilaboðum þingsins og sagði að það mætti skoða einhverjar aðrar leiðir í framhaldinu. Þetta var samþykkt í þingsal, ég held bara af öllum flokkum, og þetta var staðan.
Við erum að horfa upp á gríðarlega mikið bruðl í kerfinu eins og við höfum byggt þetta upp á undanförnum árum. Það er hægt að nefna Ölfusárbrú sem er verið að byggja milljörðum dýrari heldur en þyrfti að gera. Það lágu miklu einfaldari útfærslur sem lágu teiknaðar á borðinu. Það var kosið að fara í einhverjar dýrustu útfærslur sem hægt væri að fara í. Lauslega áætlað er Ölfusárbrú að kosta 8 milljörðum meira en hún hefði þurft að gera. Þegar farið var í grunnhugmyndir að hönnun á Fossvogsbrú, þá var á þeim tíma miðað við að hún ætti ekki að vera dýrari en, held ég, 2,2 milljarðar. Það er kannski nálægt 3 milljörðum í dag, kannski 2,8 milljörðum. Hún er að fara að enda í 8–10 milljörðum. Við erum að fleygja milljörðum á milljarða ofan út um glugga. Við höfum farið í bútasaum mjög víða í kerfinu. Ég ætla að nefna bara tvöföldunina á milli Hveragerðis og Selfoss, sem er náttúrlega hálfgerður bastarður, með 2+1 að hluta og hringtorgum í staðinn fyrir mislæg gatnamót eins og til að mynda við Selfoss. Að bjóða þetta út í þremur áföngum í staðinn fyrir í einum áfanga, allt út af þessum fjármögnunarliðum, kostaði okkur hundruð milljóna, sennilega dálítið á annan milljarð sem við hentum bara út um gluggann við það. Hornafjarðarfljótið sem átti upphaflega að kosta 3 milljarða og eitthvað endaði í 9 milljörðum.
Það er hægt að telja svona lengi áfram, virðulegur forseti. Ég verð samt að segja að sú samgönguáætlun sem núna liggur fyrir þinginu og við erum að reyna hér að fá einhvern botn í er einhver sú ruglaðasta sem hefur verið borin hér á borð síðan ég kom. Það er reynt að halda því fram að hún sé fjármögnuð. Hún er auðvitað bara ófjármögnuð. Það er verið að gefa hér alls konar fyrirheit inn í framtíðina. Hæstv. innviðaráðherra fer að tala um að það verði hafin gangagerð strax á næsta ári í Fljótum. Það eru engir peningar ætlaðir í það, 21 milljarðs kr. framkvæmd. Það á að starta einhverju innviðafélagi. Þær hugmyndir eru algerlega ófullburða. Það er mikill vilji í þinginu til að fara einhverjar slíkar leiðir, að endurskoða þessa stóru fjármögnun, en þetta er algerlega allt einhvern veginn í einhverjum loftköstulum sem enginn getur tekið mark á og enginn í raun svarar. Ekki er hæstv. ráðherra hér til að taka þátt í þessari umræðu með okkur og gefa okkur einhver svör þannig að við gætum náð einhverjum botni í hugsunina og umræðuna. En það er haldinn blaðamannafundur með tilheyrandi flugeldasýningum eins og einkennir störf þessarar ríkisstjórnar og má þar rifja upp yfirlýsingar hæstv. forsætisráðherra í gegnum tíðina í þessu stjórnarsamstarfi, fjárfestingahaustið o.s.frv.
Svo horfum við á atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar. Hún byggir sérstaklega á að vöxtur verði í fiskeldi og slíkum greinum sem eru augljóslega mikil tækifæri í. En svo er nálgunin þar að greinin segir bara við okkur: Það verði engar fjárfestingar á þessum forsendum. Það er allt saman einhvern veginn strand í ríkisstjórnarflokkunum og þetta er staðan sem við okkur blasir. Þetta er einhver alger endaleysa sem er í gangi. Þá rifjast nú bara upp þegar við lentum í strandi á síðasta kjörtímabili. Þá ákváðu formaður Sjálfstæðisflokksins og þingflokksformaður að slíta bara þingi og sturta málunum inn á haustið. (Forseti hringir.) Var ekki hægt að ná betri samstöðu um málið? Þetta er mjög skrýtin staða í þinginu, því miður.