samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Þegar maður horfir á þessi mál öll í samhengi, samgönguáætlun og innviðafélag, og reynir að sjá þetta svona í stóru myndinni er raunverulega hægt að segja að ríkisstjórnin sé búin að sýna á spilin. Ríkisstjórnin hefur sýnt á spilin vegna þess að í samgönguáætlun er í raun lítið að frétta. Það er lítið að frétta í þessari samgönguáætlun. Ríkisstjórnin fór af stað með miklum látum og það má eiginlega segja að það hafi verið eins og að horfa á fjöldaárekstur þegar ríkisstjórnin birtist hér með hvert frumvarpið á fætur öðru um skattahækkanir; kolefnisskatturinn var hækkaður, veiðigjöldin voru hækkuð, kílómetragjald sett á, kolefnisgjald sett á. Þetta er eins og einhver raðárekstur sem við erum að horfa á þarna. Síðan kemur þetta frumvarp um samgönguáætlun þar sem í raun og veru er ekkert að frétta. Og horfandi til þess hvernig hæstv. ríkisstjórnin kynnti sig til verka í upphafi, með þessum frösum sem hún notaði; ræsum vélarnar, sem er orðinn hálfgerður brandari í dag vegna þess að það eru engar vélar farnar í gang. Byrjum að bora; það eru engir borar komnir í gang og ekki sjáanlegt að þeir séu neitt að fara í gang. Fjárfestingarhaust og verðmætasköpunarhaust. Allir þessir frasar í samhengi við framlagningu á þessu frumvarpi og frumvarpi um innviðafélag sýna raunverulega á spil ríkisstjórnarinnar: það eru engar lausnir í sjónmáli.
Þessi samgönguáætlun er ekki að fara að breyta neinu hvað varðar samgöngumannvirki í landinu á næstu misserum. Í mesta lagi má segja að ríkisstjórnin sé að lofa einhverjum framkvæmdum í tíð næstu ríkisstjórnar. Það má eiginlega segja að þetta gangi mest út á það, því það er ekkert að gerast núna. Samt kynnir hún þessar skattahækkanir, þessar raðskattahækkanir, til þess að fjármagna samgöngubætur og uppbyggingu innviða. En það er ekki að sjá að það sé neitt að gerast. Vextir hækka, verðbólga hækkar og það má segja að niðurstaðan af þessu, ef maður horfir á hvernig þetta hefur gerst síðustu mánuði, að það sé bara eitt orð til yfir þetta, herra forseti, og það er uppgjöf. Herra forseti getur brosað en eina niðurstaðan af þessu öllu saman er uppgjöf. Og hvað gerist þá? Þvert á öll loforð, því að loforð eru einskis virði í augum þessa fólks, hv. ríkisstjórnar, á að fara í einhverja vegferð til Brussel. Hæstv. utanríkisráðherra er þar eins og grár köttur alla daga á fundum með einhverjum kommisserum í von um að fá einhvers konar inngang þar inn í hallirnar, með kannski 20–30 aðra Íslendinga með sér.
Þetta er svo hlægilegt, herra forseti, og hún er svo augljós líka í mínum huga, uppgjöf þessarar ríkisstjórnar. Til hvers að fara að tala um Evrópusambandið? Jú, til þess að fólk sjái ekki hið augljósa: Ríkisstjórnin hefur raunverulega gefist upp á sínu hlutverki. Það er búið að tapa peningamálunum, vextir hækka, verðbólgan heldur af stað, skattar hækka og allt við það sama í samgöngumálum og uppbyggingu innviða. Þegar keisarinn er nakinn bendir hann auðvitað eitthvað annað og segir: Heyrðu, strákar, förum til Brussel, það er lausnin.
Mér finnst þetta augljóst, herra forseti. Ríkisstjórnin hefur gefist upp á verkefninu.