157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:40]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Við höldum áfram í umræðu um samgönguáætlun. Hér fyrir helgina tókum við töluverða umræðu um reiðvegi og hjólastíga og mér er nú málið nokkuð skylt þegar kemur að reiðleiðum eða reiðvegum. Það kemur fram í nefndaráliti meiri hluta að menn hefðu viljað sjá meiri fjármuni renna til þessa málaflokks og ég met það þannig að viljinn sé nægur hvað það varðar. En þegar við horfum á tölurnar sem liggja fyrir þá erum við bara með mjög svipaða krónutölu og var sett í verkefnið 2009. Þar af leiðandi sjáum við að sú upphæð hrekkur skammt og þörfin er gríðarleg. Það er ekkert öðruvísi hvað varðar reiðvegi og hjólreiða- og göngustíga að þá er mjög mikilvægt að við horfum til þess hvernig við getum bætt í.

Ég ætla aðeins, virðulegur forseti, að fjalla hér um þessi ákveðnu samvinnuverkefni sem hafa verið á milli hestamannafélaga heima í héraði og Vegagerðarinnar. Það hefði verið áhugavert og væri áhugavert að það yrði farið í ákveðna vinnu og reiðvegir á Íslandi yrðu mældir. Sömuleiðis væri mjög fróðlegt að taka saman allar þær vinnustundir sem hestamenn og áhugamenn um hestamennsku hafa lagt til samfélagsins með vinnu sinni við reiðvegi. Við þekkjum það t.d. mjög vel í Norðausturkjördæmi, þ.e. í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu, og við getum sagt margar sögur af hestamönnum í Skagafirði, en ég ætla að halda mig við Norðausturkjördæmi. Grunnreglan hefur yfirleitt verið þessi: Það hefur komið ákveðið fjármagn frá Vegagerðinni, hestamannafélög hafa sótt í sjóði Vegagerðarinnar og fengið úthlutun og það hefur verið ráðist í ákveðið verkefni. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða það um verðmæti hvers vegaspotta að meira en helmingur þess vegar sem er lagður er gerður í sjálfboðavinnu. Ef hestamannafélag hefur verið að fá, segjum 1–2 milljónir, sem eru nokkuð algengt hjá minni félögum, þá hafa heimamenn lagt til ómælda vinnu og tæki, fengið efni frítt og keyrt í reiðvegi. Þar sem reiðvegir liggja meðfram þjóðvegum landsins er ákveðin hætta á því þegar verið er að ríða t.d. með lausa hesta, rekstur, að lausir hestar hlaupi upp á veg og í veg fyrir bíla og því miður hafa stundum orðið alvarleg slys hvað það varðar. Þess vegna hafa hestamenn gripið til þess ráðs, í sjálfboðavinnu, að girða meðfram reiðvegum með léttri rafmagnslínu eða léttri snúru, rekið niður staura og girt meðfram reiðvegum til að koma í veg fyrir að svona slys geti orðið.

Það sem ég er að reyna að koma hérna frá mér, virðulegi forseti, er að þetta er hluti af því sem er hægt er að gera, hvernig við getum nýtt fjármuni sem falla til vegagerðar, t.d. með reiðvegi þar sem er ekki verið að gera sömu kröfur varðandi burðarþol og annað heldur fyrst og fremst að þetta sé mjúkt undir hóf. En þá er það samtakamáttur samfélagsins sem leggur til ómælda vinnu til þess að skapa öryggi og auka lífsgæði þeirra sem stunda hestamennsku.