157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:46]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir prýðisræðu. Þær eru því miður komnar í þann farveg núna samkvæmt þingsköpum að þær eru stuttar og erfitt að ná að kjarna í einni ræðu það sem hv. þingmenn vilja ramma inn. En hv. þingmaður sýnir hér, held ég, í það minnsta í annað skipti í þessari umræðu ef ekki oftar, einn af fáum, raunverulegan áhuga á þessum hluta samgöngukerfisins sem í daglegu tali við köllum reiðvegi. En það er svo áhugavert með þennan hluta samgöngukerfisins, hv. þingmaður, að honum deila hobbímaðurinn, æskulýðsstarfið, íþróttastarfið og svo atvinnugeirinn og ferðaþjónustan, þau deila þessum mannvirkjum. Nú hefur verið sýnt fram á, að mig minnir frá 2009, reiknað til núvirðis, að það er allnokkur samdráttur í úthlutun til reiðvega. En á sama tíma, á þessum sömu árum, hefur hins vegar ferðatengdri hestaþjónustu vaxið fiskur um hrygg. Ég er ekki með álitið sem hv. þingmaður vitnaði í í höndunum en ef ég man rétt þá er þar talað um að sú grein velti orðið tugum milljarða.

Mig langar að spyrja hv. þingmann í því samhengi að hér er um tiltölulega litlar fjárhæðir að ræða eins og hv. þingmaður nefndi, oft á bilinu 1, 2, 3 milljónir á félag, hvert hans mat er á því hvað við erum að fá fyrir þann pening, fyrir þá úthlutun. Við erum að leggja til hobbímennskunni, við erum að leggja til æskulýðsstarfinu, við erum að leggja til íþróttahreyfingunni og við erum líka að leggja til innviði fyrir þessa tilteknu tegund ferðaþjónustu. Væri ekki hægt að mati hv. þingmanns að rökstyðja að þarna sé ríkið að fá ansi mikið fyrir lítið?