157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:48]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Er ríkið að fá mikið fyrir lítið? Við getum litið á það þannig. En við erum öll í sjálfu sér hluti af ríkinu og leggjum okkur gott eitt til. Það hefur mikið verið rætt hér í öðru máli þessu tengdu um skattlagningu og við getum horft á það þannig að öll sú vinna sem sjálfboðaliðar leggja til, hvort sem það er áhugafólk um hestamennsku, atvinnumenn, þeir sem stunda ferðaþjónustu og þeir sem hafa lagt til reiðvegamála hér á landi, sé eiginlega óbeinn skattur sem verið er að leggja til samfélagsins. Það er alveg ljóst að það væri ekki hægt á mörgum svæðum á landinu að stunda útreiðar meðfram þjóðvegum ef ekki hefði komið til þessi vinna sem sjálfboðaliðar hafa lagt til við gerð reiðvega. Ég held að það sé alveg ljóst.

Við getum síðan horft til þess sömuleiðis að ferðaþjónustuaðilar hafa jú verið að leggja ýmislegt af mörkum. Og talandi um hættu sem getur skapast þegar verið er að ríða meðfram þjóðveginum þá er hún sennilega aldrei meiri en þegar þú ert með ferðafólk, erlenda gesti oftast nær, ríðandi meðfram vegum og þar af leiðandi er mjög mikilvægt að við búum þeim öryggi. Ég kem inn á það væntanlega í seinna andsvari að vissulega vildi ég sjá mun meiri fjármuni til reiðvegagerðar og við eigum mjög mikið verk óunnið, en við sjáum það (Forseti hringir.) mjög víða þar sem vegir eru í góðu standi að þá er það vegna þess að sjálfboðaliðar hafa lagt mikið til verkefnisins.