samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég tek auðvitað algjörlega heils hugar undir með hv. þingmanni hvað varðar virði sjálfboðavinnunnar og raunar var það nú lengi vel svo, eins og hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni áðan, að mjög stór hluti af þessari vinnu var annars vegar sjálfboðavinna og hins vegar jafnvel lán á tækjum og á stundum frítt efni. Án þess að hafa tölurnar í höndunum, hv. þingmaður, þá held ég nú að í seinni tíð hafi kannski þessi þáttur framkvæmdanna þó heldur dregist saman ef frá er talið það sem hv. þingmaður gerði að umtalsefni, sem er að snúra eða girða meðfram reiðvegum sem eru í sumum tilfellum, það er illleysanlegt víða, óþarflega nærri þjóðvegunum. Ef ég man rétt úr reglugerðunum og lögunum hjá Vegagerðinni þá minnir mig að veghelgunarsvæði sé 15 m frá miðlínu vegar þannig að þjóðvegurinn tekur þá u.þ.b. 30 m svæði. Sums staðar hefur bara ekki öðru verið við komið. Það er kannski eitthvað sem við ættum að horfa til, hv. þingmaður, til framtíðar. Um leið og við viljum sjá ríkið koma að þessu með myndarlegri hætti, því að ég held að ríkið fái þetta allt til baka, þess vegna nefndi ég sérstaklega ferðaþjónustuna hérna áðan, þá verði litið til þess í auknum mæli að hreinlega hluti af þessu fé sé sérstaklega hugsaður til að auka öryggi. Búa til aðskildar leiðir, hvort sem það er gert með girðingu eða einhverjum öðrum aðferðum, snúrun eða einhverju slíku, til að verja okkur vegfarendur sem eru ríðandi. Ég gæti alveg hugsað mér, herra forseti, að heyra hugmyndir hv. þingmanns um hvort það til að mynda væri ein leið til að réttlæta og rökstyðja aukna þörf í uppbyggingu þessara mannvirkja.