157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:53]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Hann kom inn á að við vildum aðgreina reiðvegina betur frá þjóðveginum eða hafa sérleið. Heilt yfir er það nú þannig að ef við þurfum að ríða meðfram vegi er yfirleitt heppilegast að leggja reiðveg næstum því innan veghelgunarsvæðis þjóðvegarins og vera þar af leiðandi mjög nálægt þjóðvegi. Það geta skapast og hafa skapast vandamál þegar við erum að reyna að færa reiðvegina frá helgunarsvæði þjóðvegarins því að þá erum við oft og tíðum komin inn á einkalönd, jafnvel ræktuð einkalönd, þ.e. tún og akra, og landeigendum, bændum í þessu tilviki, er yfirleitt frekar annt um landið. Víða er það orðið þannig, virðulegi forseti, að við getum riðið nokkuð frjáls í umhverfi þar sem umferð er ekki til staðar. En það er óhjákvæmilegt alls staðar um landið að við þurfum greiða leið fyrir hestamenn og þá meðfram þjóðvegi hverju sinni til þess að geta nýtt þessa kafla sem eru, eins og maður segir, ómengaðir af bílaumferð. Ég held að þetta sé framtíðarmúsík hvað það varðar en mikilvægt er til framtíðar litið að við eflum reiðvegagerð á Íslandi vegna okkar helsta sendiherra, sem er íslenski hesturinn, og sömuleiðis vegna fjölda erlendra gesta sem koma til okkar hverju sinni.